Hillary Clinton býður sig fram til forseta Bandaríkjanna

Hillary Clinton hefur ákveðið að bjóða sig fram til embættis forseta Banda­ríkjanna, og mun formlega sækjast eftir því að verða forseta­fram­bjóðandi Demókrata í forseta­kosningunum á næsta ári.

Þar með er eitt verst varð­veitta leyndar­málið í Washington orðið opinbert, en yfir­vofandi framboð Clinton hefur verið á hvers manns vitorði vestan hafs undan­farin tvö ár.

Í umfjöllun The New York Times er greint frá því að tilkynning frá Clinton hafi fyrst borist velgjörðar­mönnum hennar í tölvu­pósti í dag. Kosninga­stjóri hennar, John Podesta, skrifaði tölvu­póstinn, en í honum stóð: „Ég vildi tryggja að þið mynduð heyra þetta fyrst frá mér - það er opinbert, Hillary ætlar að bjóða sig fram til forseta.“

Eins og kunnugt er tapaði Clinton fyrir Barack Obama, sitjandi Bandaríkja­forseta, í barátt­unni um útnefningu Demókrata-flokksins árið 2008. Hljóti hún útnefningu flokksins nú, verður hún fyrsta konan sem hlýtur slíka útnefningu frá öðrum af stóru stjórn­mála­flokkunum í Banda­ríkjunum. Flestir eru þó á því að hún eigi útnefninguna vísa, enda nýtur Clinton mikilla vinsælda vestan hafs, og þá sérstak­lega á meðal kvenna, svo mikilla í raun að Obama sá sig tilneyddan til að gera hana að utan­ríkismála­ráðherra í ríkis­stjórn sinni.

Hillary Clinton, sem er 67 ára gömul, er að sjálfsögðu öllum hnútum kunn í Hvíta húsinu eftir að hafa búið þar í átta ár, eða á meðan eigin­maður hennar Bill Clinton gegndi embætti Bandaríkja­forseta á árunum 1993 til 2001.

Sjá spánýtt kosninga­myndband Hillary Clinton, sem birt var á Youtube í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár