Þorsteinn í Quiz Up: Enginn undir 15 ára aldri er á Facebook

Þorsteinn Friðriksson, stofnandi og forstjóri Quiz Up, segir að það sé mögulegt fyrir Quiz Up að verða ,,næsta Facebook". Þó sé Quiz Up ekki að leita á sömu mið; Facebook sé fyrir gamla vini en Quiz Up sé hugsað fyrir nýja vini og tengsl. Þetta kemur fram í viðtali við Þorstein við vefsíðu Forbes, þar sem Quiz Up er til umræðu.

"Við erum að tapa peningum," segir Þorsteinn í viðtalinu, og segir hann enn fremur að Quiz Up sé að byggja upp sterkari grundvöll til þess að byggja upp auglýsinga­tekjur og kostunar­samstarf af ýmsu tagi. Í grunninn sé hugmyndin að hafa nægilega marga notendur svo það geti myndast nægilega miklar tekjur.

Fyrir­tækið setti í loftið nýja útgáfu af Quiz Up á vormánuðum þar sem App spurninga­leikurinn vinsæli varð í reynd að samfélags­miðli sem tengir fólk saman eftir áhuga­sviðum. Um 35 milljónir notenda eru sagðir vera tengdir Quiz Up og um sex milljónir noti hann mánaðar­lega.

Quiz Up byggir starfsemi sína núna á fjármagni sem sótt hefur verið í fjórum fjár­mögnunar­umferðum (Funding rounds) sem hafa safnað um 30 milljón Bandaríkja­dölum, eða sem nemur um fjórum milljörðum króna. Fyrir­tækið er að vaxa hratt þessa dagana og hyggst opna skrif­stofu í New York innan tíðar, að því er greint var frá í Viðskipta­blaðinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár