Þakkar Miðflokksmönnum staðfestu varðandi þriðja orkupakkann

Formaður VR skorar á rík­is­stjórn­ina að fresta mál­inu um þriðja orku­pakk­ann fram á haust og biður um að þjóðin fái and­rými til að kynna sér málið betur.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, sendir bar­áttu­kveðjur til þeirra alþing­is­manna sem talað hafa fyrir því að neita að sam­þykkja þriðja orku­pakk­ann. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu hans á Facebook í dag.

„Ég sendi bar­áttu­kveðjur til þeirra þing­manna sem standa vakt­ina fyrir mig og börnin mín, dag og nótt, við algjör­lega óvið­unn­andi og ómann­úð­legar aðstæður, á vinnu­tíma sem varla getur talist boð­legur í nútíma sam­fé­lagi, í því að koma í veg fyrir að 3 Orku­pakk­inn verði sam­þykktur,“ skrifar hann.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, sleit þing­fundi klukkan rúm­lega níu í morgun. Þá hafði fundur staðið frá klukkan hálf fjögur í gær og farið alfarið í umræðu um þriðja orku­pakk­ann. Stein­grímur bað þing­menn Mið­flokks­ins til að íhuga fram­haldið og hvatti þá til að tak­marka eða draga úr ræðu­höldum sínum svo hægt væri að ljúka umræð­unni og hleypa öðrum málum á dag­skrá.

Skorar á ríkisstjórnina að fresta málinu fram á haust

„Ég vil koma á fram­færi þakk­læti fyrir stað­festu þeirra í þessu máli sem varðar svo mikla hags­muni fyrir þjóð­ina og afkom­endur okkar,“ segir Ragnar Þór enn fremur á Facebook.

Hann skorar á rík­is­stjórn­ina að fresta mál­inu fram á haust og biður um að þjóðin fái and­rými til að kynna sér málið betur.

„Við kjós­endur hljótum að geta gert þá kröfu þegar svo stór og umdeild mál, er snúa að auð­lindum þjóð­ar­innar og grunn­stoðum sam­fé­lags­ins, eru til umfjöll­unar og hafa ekki fengið efn­is­lega umræðu í aðdrag­anda kosn­inga.

Okkur getur varla legið svo mikið á að ekki megi slá þessu á frest til hausts­ins,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár