Segir Miðflokkinn halda Alþingi í gíslingu

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks segir mál­þóf eiga ekk­ert skylt við mál­frelsi eða lýð­ræði og að það þekk­ist hvergi utan Íslands. Þingmenn Mið­flokks­ins hafa haldið uppi slíku vegna þriðja orku­pakk­ans dögum saman.

Þingflokkur Miðflokksins í Alþingisgarðinum í morgun, eftir enn einn næturfundinn þar sem þeir ræddu þriðja orkupakkann við sjálfa sig.
Þing­flokkur Mið­flokks­ins í Alþing­is­garð­inum í morgun, eftir enn einn næt­ur­fund­inn þar sem þeir ræddu þriðja orku­pakk­ann við sjálfa sig. Mynd: Facebook / Miðflokkurinn

„Núver­andi fyr­ir­komu­lag, þar sem fámennur hópur stjórn­ar­and­stæð­inga getur tekið þingið í gísl­ingu, gengur ekki til fram­tíðar.“

Þetta segir Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í grein í Frétta­blað­inu í dag þar sem hún fjallar um mál­þóf þing­manna Mið­flokks­ins í umræðum um þriðja orku­pakk­ann og fyr­ir­komu­lag umræðna á Alþingi.

Í grein­inni segir Bryndís að mál­þóf eigi ekk­ert skylt við mál­frelsi eða lýð­ræði og að það þekk­ist hvergi utan Íslands. „Málþóf er sér­ís­lenskt fyr­ir­brigði. Alþingi er eng­inn venju­legur vinnu­staður. En vinnu­staður er hann engu að síður, þar sem vanda þarf mjög til verka til að tryggja góða laga­setn­ingu. Þegar and­stæð sjón­ar­mið hafa komið fram í þing­sal er nauð­syn­legt að leiða mál til lykta, ýmist með mála­miðl­unum eða með atkvæða­greiðslum þar sem hreinn meiri­hluti ræður. Hvort sem þing­menn verða undir eða yfir í ein­staka málum er óum­deilt að þetta er skil­virk og sann­gjörn aðferð til að kom­ast að nið­ur­stöðu. Daga og nætur eru þing­fund­irnir und­ir­lagðir af ræðum þing­manna úr einum þing­flokki þar sem hver þing­mað­ur­inn fer í ræðu­stól á fætur öðrum og sam­flokks­þing­menn­irnir tín­ast í andsvör við þann fyrri. Að ógleymdu hól­inu hvers til ann­ars, það er gott að fá klapp á bakið.“

Þingmenn Mið­flokks­ins hafa haldið uppi mál­þófi í umræðum um þriðja orku­pakk­ann dögum saman og talað fram á morgun við hvorn annan á alls fjórum þing­fundum frá því í síð­ustu viku. Síðasti þing­fundur stóð frá klukkan fjögur síð­degis í gær og til klukkan sex í morgun. Enginn annar þing­maður nokk­urs ann­ars flokks tók til máls í umræð­unum.

Áfram­hald­andi umræða verður um þriðja orku­pakk­ann klukkan 15:30 í dag.

Vegna mál­þófs­ins hefur for­sætis­nefnd Alþingis þurft að bæta við þing­fundum í dag og á morgun, en til stóð að þeir dagar yrðu und­ir­lagðir undir nefnd­ar­fundi.

Stefnt er að því að slíta þingi 5. júní næst­kom­andi. Nokkuð ljóst er að þau nokkur hund­ruð frum­vörp, þings­á­lykt­un­ar­til­lögur og fyr­ir­spurnir sem bíða afgreiðslu þings­ins munu ekki ná að kom­ast á dag­skrá né klár­ast fyrir kom­andi þing­lok.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár