Guðmundur Andri: Málþóf fjandsamleg yfirtaka á Alþingi

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hnýtir í Mið­flokks­menn en hann telur að mál­þóf sé leið til þess að láta þing­ræðið ekki hafa sinn gang.

Guðmundur Andri Thorsson
Guð­mundur Andri Thorsson Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innnar, segir mál­þóf vera fjand­sam­lega yfir­töku á Alþingi, fram­kvæmd með því að toga og teygja venjur og reglur. Þetta segir hann í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni í morgun.

Þing­fundi á Alþingi var frestað klukkan 8:40 morgun en hann hafði þá staðið frá því klukkan hálf tvö í gær. Þingmenn Mið­flokks­ins töl­uðu um þriðja orku­pakk­ann í allan gær­dag og fram til klukkan níu þegar nefnd­ar­fundir á nefnd­ar­sviði Alþingis hófust.

Þegar fund­inum var frestað hafði hann staðið sam­fleytt í rúmar nítján klukku­stundir. Síðari umræða um þriðja orku­pakk­ann stendur enn þar sem þing­menn Mið­flokks­ins stíga einir í ræðu­stól. Þing­fundur hefst á ný klukkan þrjú í dag.

Guð­mundur Andri segir enn fremur að mál­þóf sé leið til þess að láta þing­ræðið ekki hafa sinn gang. „Menn koma upp í ræðu­stól og tala en ofmælt er að kalla það ræður sem þar er flutt – miklu frekar nokk­urs konar óræður. Óræða eftir óræða dynur á okkur og andsvörum er breytt í með­svör blygð­un­ar­laust.“

Málþóf sé afskræm­ing á einum mik­ils­verð­asta þætti þing­ræð­is­ins, þegar kjörnir full­trúar ólíkra sjón­ar­miða reifa mál og rök­ræða, eiga í sam­ræðu með og á móti. Þetta sýni mikið virð­ing­ar­leysi fyrir ræðu­stólnum og stofn­un­inni. „Málþóf getur verið neyð­ar­réttur minni­hluta gegn ofríki meiri­hluta þegar hann er ósveigj­an­legur og vill ekki semja um mál sín – en hér heldur einn smá­flokkur til í ræðu­stól Alþingis sól­ar­hringum saman þar sem sam­flokks­menn röfla hver við annan í ein­hvers konar hópefli eða íþrótta­keppni,“ skrifar þing­mað­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár