Styrkja þurfi flutning á rafmagni til almennrar notkunar

Samkvæmt stjórn Land­verndar þarf að greina veikustu hlekkina í raforku­kerfi landsins. Það sé afar mikilvægt þar sem búast megi því við að tíðni ofsa­veðurs fari vaxandi í fram­tíðinni vegna öfga í veðurfari vegna hættulegra breytinga af manna­völdum.

Í erfiðu ástandi sem skapaðist víða um land vegna fárviðris og lang­varandi rafmagns­leysis virðist sem stjórn­endur helstu orku­fyrirtækja landsins varpi ábyrgð á land­eigendur og náttúru­verndar­fólk. Fáeinir stjórn­málamenn hafa í fljót­færni tekið undir þennan málflutning og kalla eftir aðgerðum sem auðvelda fyrir­tækjum að ráðast í umdeildar framkvæmdir. Þessi upphlaup eru óheppileg svo vægt sé til orða tekið.

Með þessum orðum hefst frétta­tilkynning sem stjórn Land­verndar sendi frá sér í vikunni. Tilefnið eru umræður eftir mikið fárviðri sem geisaði yfir Ísland í síðustu viku.

Samkvæmt stjórn Land­verndar þarf að greina veikustu hlekkina í raforku­kerfi landsins. „Þetta er afar mikilvægt þar sem búast má því við að tíðni ofsa­veðurs fari vaxandi í fram­tíðinni vegna öfga í veðurfari sem óhjá­kvæmilega eru fylgi­fiskur hættulegra breytinga á veðurfari af manna­völdum,“ segir í tilkynningunni.

Leggja áherslu á að auka notkun jarðstrengja

Þá kemur enn fremur fram hjá stjórninni að afhendingar­öryggi raforku fyrir almenna notkun sé ein mikil­vægasta undir­staða velsældar í landinu. Landvernd hafi í því sambandi lagt áherslu á að auka notkun jarð­strengja þar sem það dragi úr neikvæðum sjónrænum áhrifum og auki afhendingar­öryggi. Þessi sjónarmið hafi gleðilega átt vaxandi fylgi að fagna.

Í þeim tilfellum þegar Landvernd hefur gert athuga­semdir við raflínu­lagnir hafi það verið vegna lína fyrir stóriðju og þegar mikil náttúru­verðmæti séu í húfi ef loftlína yrði reist. Aðeins í tveimur tilfellum hafi samtökin farið með mál fyrir dómsstóla, eins og heimilt er í löndum sem skilgreina sig réttar­ríki.

Bætt orkunýtni ein vannýttasta auðlind landsins

Í tilkynningu stjórnar Land­verndar kemur jafnframt fram að srá 2011 til 2018 hafi raforku­framleiðsla aukist á Íslandi úr 16,8 í 19, 8 teravattstundir, eða um tæplega 18 prósent. Á sama tíma hafi íbúum fjölgað um tæplega 12 prósent. Fram hafi komið fréttir frá orku­fram­leiðendum að þeir geti aukið nýtni núverandi orkuvera á næstu árum meðal annars vegna endurnýjunar tækja og breyttu vatnafari vegna bráðnunar jökla. Ódýrasti virkjunar­kosturinn, bætt orkunýtni, sé ein vannýttasta auðlind landsins.

„Allt tal um að umdeildar virkjanir sem stórskaða náttúruarf þjóðarinnar séu nauðsynlegar fyrir orku­öryggi landsins er því villandi málflutningur. Orka til almennra nota er nægjanleg enda fara liðlega 80 prósent raforku­framleiðslu í dag til stóriðju og í bit-coin gröft sem ekki skapar samfélagsleg verðmæti,“ segir í tilkynningunni.

Landvernd lýsir eftir að ástæður fyrir þeim vanda sem skapaðist vegna rafmagns­leysis í undan­farna daga verði grand­skoðaðar. „Þegar öll kurl koma til grafar verði leitað að hagkvæmum lausnum sem ekki valda skaða á náttúru landsins til að styrkja flutning á rafmagni til almennra nota til framtíðar, þar sem hætta á ofsaveðri fer vaxandi. Þar til þetta liggur fyrir er heppilegast að staldra við frekar enn að leita að sökudólgum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár