Upp á síðkastið hef ég tekið eftir neikvæðni og hatri í garð annarra. Sérstaklega í kringum flóttamenn hér á landi. Svo er það unga fólkið sem er að reyna að standa fyrir sínu, hvort sem það er í tengslum við flóttamenn eða umhverfismál. Það er margt fólk sem virðist fara í vörn gagnvart þessu eða verður reitt. Það kom mér mikið á óvart og ég varð leiður við að sjá það. Kannski getur maður búist við því að það sé alltaf eitthvert fólk sem taki svona hluti ekki í sátt einn, tveir og bingó, en það var meiri hræðsla en ég hélt.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir