Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur saman lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag, að mati fjöl­miðilsins. Þar kennir ýmissa grasa, nú sem endranær.


  1. Þjóð­verjar munu ræða um áætlanir Evrópu­sambandsins, um að dreifa 160 þúsund flótta­mönnum á milli ríkjanna, við utan­ríkis­ráðherra Tékklands, Ungverja­lands, Póllands og Slóvakíu í dag.

  2. Japanir halda áfram að kljást við afleiðingar mikilla flóða vegna felli­bylsins Etau.

  3. Fréttir berast nú af því að Rússar hafi afhent sýrlenskum stjórn­völdum fjölda hergagna, sem sagt er að ætluð séu til að berjast gegn hryðju­verkum.

  4. Hlutabréf á mörkuðum í Asíu hafa hækkað í kjölfar hækkana á Wall Street.

  5. Finnar hafa lagt til hækkun á fjármagns­tekjuskatti og tekju­skatti eigna- og tekju­hárra einstaklinga og vilja nota peningana í flóttamanna­krísuna.

  6. Leopoldo Lopez, leiðtogi stjórnar­andstöðunnar í Venesúela, hefur verið dæmdur í fjórtán ára fangelsi fyrir að hvetja til ofbeldis í mótmælum gegn stjórn­völdum í fyrra.

  7. Vísinda­menn hafa fundið nýjan ættingja homo sapiens, manna, inni í helli í Suður-Afríku.

  8. Barack Obama Bandaríkja­forseti getur fagnað því að öldungar­deildar­þingmenn Demókrata komu í veg fyrir tilraunir Repúblikana til þess að stöðva Írans­samkomu­lagið um kjarnorku í gær.

  9. Forstjóri MtGox, sem var einu sinni umfangs­mesti miðlari með Bitcoin, hefur verið ákærður fyrir fjárdrátt í Japan.

  10. Fjórtán ár eru í dag liðin frá hryðjuverka­árásunum sem hafa alltaf verið kennd við dagsetninguna, 11. september, þegar Tvíbura­turnarnir í New York hrundu og ráðist var á Pentagon.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár