Nýr ættingi Homo sapiens fannst í Suður-Afríku

Gríð­ar­legt magn beina hafa fund­ist innst í dimmum helli í Suður-Afríku og eru þau hugs­an­lega leifar áður óþekktra skyld­menna nútíma­manns­ins. Nýja teg­undin hefur verið nefnd Homo naledi. Frá þessu er meðal ann­ars greint á vef The Guardian. Tíma­ritið National Geographic hafði fund­inn til umfjöll­unar í nýjasta hefti sínu.

Forn­leifa­fræð­ing­arnir þurftu að þröngva sér í gegnum þröngar sprungur til þess að kom­ast að stein­gerv­ing­unum. Alls fund­ust meira en 1.500 stykki af beinum sem hafa til­heyrt í það minnsta 15 ein­stak­lingum. Leif­arnar eru af korna­barni, mjög gömlum ein­stak­lingi og tán­ingum. Þúsundir fleiri beina eru í hell­inum, undir þunnu lagi af mold sem þekur hellis­gólfið.


Ekki hefur verið áætlað hversu gömul beinin eru en ljóst er að þau eru af fornum ætt­ingja homo sapi­ens. Nafn nýju teg­und­ar­innar homo naledi er dregið af nafni hell­is­ins, „Hellis rísandi stjörnu“ (e. Rising Star cave) en á sótó þýðir „naledi“ ein­fald­lega „stjarna“.

[caption id="attachment_38781" align="alignnone" width="591"] Höf­uð­kúpa Homo naledi borin saman við höf­uð­kúpu Homo sapi­ens.[/caption]

Ekki eru allir sér­fræð­ingar í vís­inda­sam­fé­lag­inu sann­færðir um að hér sé um mann­lega veru að ræða, í það minnsta segja þeir ekki hægt að full­yrða um það út frá vís­bend­ing­unum sem þegar hafa verið rann­sak­aðar. Beinin lík­ist frekar for­vera homo sapi­ens, Homo erectus, sem bjuggu þarna í sunn­an­verðri Afríku fyrir 1,5 milljón árum síðan.


Lee Berger, forn­mann­fræð­ingur sem stýrði rann­sókn­inni, segir þessa nýju teg­und hafa verið smá­vaxna, haft lít­inn heila en haft langa leggi og verið kjána­lega. „Við getum komið þess­ari teg­und fyrir í ætt­ar­tréi mann­skeppn­unar, sem er mjög merki­legt,“ segir Berger. Karlar af teg­und Homo naledi kunna að hafa verið um 150 senti­metrar á hæð og konur aðeins minni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár