Grikkir kalla sendiherra til baka frá Austurríki vegna flóttamannamála

Flóttamenn í Grikklandi. Grikkir hafa tekið við gríðarlegum fjölda flóttamanna.
Flótta­menn í Grikk­landi. Grikkir hafa tekið við gríð­ar­legum fjölda flótta­manna. Mynd: EPA

Grikkir hafa kallað nú sendi­herra sinn til baka frá Austur­ríki, sem er nýjasta vendingin í flóttamanna­deilum ESB. Ástæðan er sú að Austur­ríkismenn héldu fund ásamt ríkjum Balkans­kaga um það hvernig taka beri á flóttamanna­vandanum í Evrópu. Grikkjum, sem taka á móti mjög stórum hluta flótta­mannanna, var ekki boðið á fundinn.

Þetta þykir Grikkjum óvinalegt og því hefur sendi­herrann verið kallaður heim til ráðgjafar. Í tilkynningu frá gríska utan­ríkis­ráðuneytinu segir að þetta sé gert til að viðhalda vingjarnlegum samskiptum ríkjanna og þjóðanna tveggja. Ekki sé hægt að fást við vanda­málin innan Evrópu­sambandsins með hugsana­hætti og aðferðum sem eigi rætur sínar að rekja til nítjándu aldarinnar.

Tíu Balkan­ríki voru á fundinum í Austur­ríki og komu sér þar saman um aðgerðir til að reyna að hefta komu flótta­manna. Austur­ríki, Serbía og Makedónía hafa nú þegar gripið til slíkra aðgerða, sem hefur reitt Grikki til reiði. Þeir hafa varað við því að það gangi ekki að leggja byrðarnar á eitt ríki, þannig leysist málið ekki.

Ráðherrar frá Evrópu­sambands­ríkjum og ríkjum Balkan­skagans funda nú í Brussel til að reyna að sætta ólík sjónarmið í málinu. Tillögur Balkan­ríkjanna og Austur­ríkis verða kynntar á fundinum, en meðal þess sem ríkin vilja er að taka fingraför af öllum sem koma til landanna og snúa við öllum þeim sem ekki hafa vegabréf eða eru með fölsk skilríki. Þá vilja þau aðeins taka við flótta­mönnum sem þeir meta í mikilli þörf fyrir vernd, sem sum stjórn­völd vilja meina að þýði að aðeins verði tekið við Írökum og Sýrlendingum. Makedónar snéru afönsku flótta­fólki í hundraða­tali við á landa­mærum Grikk­lands um helgina.

Gríski ráðherrann Yannis Mouzalas sagði við blaðamenn í Brussel að Grikk­landi myndi ekki sætta sig við að verða „Líbanon Evrópu“, einhvers konar geymslu­staður fyrir fólk. Milljón sýrlenskir flótta­menn eru í Líbanon.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár