Fjármagnshöftum aflétt á Kýpur

Fjármagns­höftum var aflétt á Kýpur í gær, rúmum tveimur árum eftir að þau voru sett á. Afléttingin er trausts­yfirlýsing fyrir banka­kerfið í landinu þrátt fyrir þriggja ára kreppu, segir forsetinn Nicos Anastasiades.

Höftin voru sett á í lok mars 2013 vegna ótta við áhlaup á banka. Þau voru losuð í janúar síðastliðnum en losuð alveg í gær. Það þýðir að ekki er lengur þak á milli­færslur einstaklinga í erlenda banka, en það var 20 þúsund evra hámark á slíkar milli­færslur. 20 þúsund evrur samsvara tæpum þremur milljónum króna. Þá var einnig hámark á úttektir úr bönkum fyrir fólk á leið til útlanda, en það hámark var 10 þúsund evrur á einstakling, eða tæplega ein og hálf milljón króna. Á Íslandi er hámarks­úttekt gjald­eyris 350 þúsund krónur.

Kýpur var eina evruríkið sem setti á fjármagns­höft, en þau voru sett á í samráði við stjórn­völd í Brussel og hjá Alþjóða­gjaldeyris­sjóðnum. Ríkið fékk tíu milljarða evru neyðarlán frá þessum stofnunum eftir að stærstu bankarnir riðuðu til falls. Kýpverskir bankar töpuðu um 4,5 milljörðum evra á fjár­festingum í Grikk­landi, sem jafn­gildir um fjórðungi vergrar lands­framleiðslu.

Í upphafi voru höftin þannig að ekki var hægt að taka út meira en 300 evrur á dag, en þessum hluta haftanna var aflétt strax í lok árs 2013.

Anastasiades sagði í lok síðustu viku, þegar hann tilkynnti um væntanlegt afnám haftanna, að bankarnir væru nú að mestu leyti óháðir því sem gerist í nágranna­ríkinu Grikk­landi, sem á enn í gríðar­miklum erfið­leikum. Aðskilnaðurinn var eitt skilyrðanna fyrir fjárhags­aðstoð til Kýpur.

Fjármagns­höftin hafa oft verið borin saman við höftin á Íslandi. Aðstæðurnar eru þó og voru ólíkar. Á Kýpur voru höftin sett á til þess að koma í veg fyrir áhlaup á banka, og bönkum var lokað í tals­verðan tíma vegna þessa. Á Íslandi voru þau liður í aðgerðum til að tryggja stöðug­leika krónunnar. Aðstæðurnar eru einnig ólíkar vegna þess að á Kýpur er notuð evra, sami gjald­miðill og annars staðar á evru­svæðinu. Kýpverjar áttu ekki í erfið­leikum með að skipta sínum gjald­miðli í aðra gjald­miðla eins og Íslendingar. Þá hafa fjármagns­höftin verið við lýði á Íslandi í talsvert lengri tíma en á Kýpur, eða í sex og hálft ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár