Upp á fjallsins brún

Ganga er ódýrasta hreyfing sem hægt er að hugsa sér og sú hreyfing sem flestir sérfræðingar mæla með til heilsu­bótar. Að búa sig rétt út í göngu getur skipt sköpum þegar kemur að öryggi, jafnvel bjargað lífi við ákveðnar aðstæður. Fjöldi gönguhópa eru starf­ræktir, fyrir vana sem jafnt sem óvana göngumenn.

Gengið niður Hvanngil
Gengið niður Hvanngil Fjall­göngur reyna á bæði styrk og þol. Það þarf hins vegar ekki að taka svo langan tíma að þjálfa sig nægi­lega vel upp til að kom­ast í tæri við stór­feng­lega nátt­úru. Mynd: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir

Það jafnast fátt á við góða göngu í fallegri náttúru til að efla andann og bæta hreysti. Samt sem áður gerum við mörg hver ekki nógu mikið af því að ganga. Við afsökum okkur með því hversu upptekin við erum, höfum ekki tíma, erum í of lélegu formi, eigum ekki pening, réttan útbúnað eða bíl til þess að koma okkur á áfanga­stað. En raunin er sú að við þurfum ekki mikið annað en okkur sjálf til þess að fara í góða heilsu­bætandi göngu. Við þurfum yfirleitt ekki að leita langt yfir skammt til að finna góð útivistar­svæði, bæði innan sem og utan bæjar­marka. Jafnframt eru til fjölmargir göngu­hópar þar sem boðið er upp á rútu­ferðir á upphafs­reit eða að samferða­fólk safnist saman í bíla. En það reynist oft erfitt að koma sér af stað og stundum er það einfald­lega of þægilegt að henda sér í sófann þegar heim er komið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár