Tíu stærstu nöfnin sem misstu sæti sitt í bresku þingkosningunum

Kosningarnar í Bretlandi í gær voru einar þær sögulegustu sem farið hafa fram í landinu. Hinn óvænti hreini meirihluti Íhalds­manna og stórsigur Skoska þjóðar­flokksins (SNP) í Skotlandi, þar sem hann hirti 56 af 59 sætum á breska þinginu, gerði það að verkum að mörg stór nöfn í breskum stjórn­málum töpuðu sætum sínum. Og eðlilega voru þing­mennirnir flestir í framboði fyrir þá tvo flokka sem biðu afhroð í þing­kosningunum, Verkamanna­flokkinn og Frjáls­lynda demókrata. Business Insider tók saman lista yfir þá tíu stærstu.



  1. Jo Swinson




Jo_Swinson_MP_at_Bournemouth
Jo_Swinson_MP_at_Bournemouth

Jo Swinson er atvinnumála­ráðherra Frjáls­lyndra demókrata. Hún tapaði sæti sínu til SNP, en einungis með um tvö þúsund atkvæðum. Swinson hafði verið spáð miklum frama og þótti líkleg sem næsti formaður Frjáls­lyndra demókrata. Sá draumur virðist úti, að minnsta kosti um sinn.

 



  1. Ed Davey




Ed Davey er orku­mála­ráð­herra Frjáls­lyndra demókrata. Hann hafði setið á þingi frá árinu 1997. Hann tap­aði sæti sínu til Íhalds­flokks­ins.


  1. Simon Hughes




Simon Hughes er dóms­mála­ráð­herra og hafði setið í 32 ár á þingi fyrir Frjáls­lynda demókrata. Hann missti sætið sitt, ótrú­legt en satt, til fram­bjóð­anda Verka­manna­flokks­ins.


  1. David Laws




David Laws.

David Laws.
David Laws.

David Laws er menntamála­ráðherra Frjáls­lyndra demókrata. Kjördæmi hans, Yeovil, hefur áratugum saman verið mjög sterkt vígi flokksins og sá sem sat í því á undan honum var Paddy Ashdown, fyrrum formaður Frjáls­lyndra demókrata. Nú vermir Íhalds­þingmaður sætið.

Laws vann í fjár­festinga­banka áður en hann tók sæti á þingi. Hann var einn þeirra þingmanna sem voru harkalega gagn­rýndir eftir að uppljóstrað var um óhoflega nýtingu þeirra á kostnaðar­greiðslum.



  1. Jim Murphy




Jim Murphy hefur verið leið­togi Verka­manna­flokks­ins í Skotlandi í tæpt ár. Hann, líkt og 40 aðrir þing­menn flokks­ins í Skotlandi, misstu starfið sitt í kosn­ing­unum. Sæti hans fór auð­vitað til SNP.


  1. Esther McVey




Esther McVey er atvinnu­mála­ráð­herra Íhalds­flokks­ins og eina stóra nafn þess flokks sem féll í kosn­ing­unum í gær. Henni hafði verið spáð enn meiri frama innan flokks­ins en sá frami verður lík­ast til að bíða um sinn. Enda situr hún ekki lengur á þingi.


  1. Danny Alexander




Danny Alex­ander hefur sinnt und­ir­ráð­herra­emb­ætti í fjár­mála­ráðu­neyt­inu og situr á þingi fyrir Frjáls­lynda demókrata. Hann var hluti af fjög­urra manna valdateymi innan síð­ustu rík­is­stjórnar sem mót­aði ákvörð­un­ar­töku í stórum málum, ásamt David Cameron for­sæt­is­ráð­herra, fjár­mála­ráð­herr­anum George Osborne og Nick Clegg, frá­far­andi leið­toga Frjáls­lyndra demókrata. Alex­ander var hins vegar þeirra ógæfu aðnjót­andi að vera þing­maður kjör­dæmis í Skotlandi, og að sjálf­sögðu hirti fram­bjóð­andi SNP sæti hans.


  1. Douglas Alexander




Mhairi Black.

Mhairi Black.
Mhairi Black.

Douglas Alexander var utan­ríkis­ráðherra í skugga­ráðuneyti Verkamanna­flokksins, og hefði orðið utan­ríkis­ráðherra ef flokkur hans hefði endað í ríkis­stjórn. Semsagt mjög stór pólitískur leikari. Alexander tapaði sæti sínu í Skotlandi til Mhairi Black, tvítugs fram­bjóðanda SNP, sem fyrir vikið varð yngsti þingmaður Bretlands í mörg hundruð ár.



  1. Vince Cable




Vince Cable var ráð­herra við­skipta í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu og sat á þingi fyrir Frjáls­lynda demókrata. Hann er lík­lega stærsta nafn flokks­ins sem missti sæti sitt, enda oft verið nefndur sem mögu­legur næsti for­maður hans. Cable tap­aði sæti sínu til fram­bjóð­anda Íhalds­flokks­ins.


  1. Ed Balls




h_51896936 (1)
h_51896936 (1)

Ed Balls er fjármála­ráðherra í skugga­ráðuneyti Verkamanna­flokksins og hefði orðið fjármála­ráðherra Bretlands ef flokkur hans hefði komist í stjórn. Semsagt næst stærsta pólitíska stærðin innan flokksins á eftir Ed Milliband, nú fráfar­andi formanni hans. Balls hefur verið mjög áberandi í breskum stjórn­málum árum saman og var lykil­maður í teyminu á bakvið Gordon Brown þegar sá var fjármála­ráðherra. Hann er í raun búin að vera í fremstu viglínu breskra stjórn­mála í meira en áratug og mjög áhrifa­mikill. Nú er hann atvinnu­laus.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár