Saksóknari ætlar til London að yfirheyra Julian Assange

Saksókn­arar í Svíþjóð hafa boðist til þess að fara til London til þess að geta yfirheyrt Julian Assange, stofnanda Wikileaks. Hingað til hafa þeir hafnað því að fara til London, þar sem Assange hefur dvalið í tæplega þrjú ár í sendiráði Ekvador.

Marianne Ny saksóknari útskýrði hvers vegna hún hefði skipt um skoðun á málinu. „Mín skoðun hefur alltaf verið að það að taka viðtal við hann í sendiráði Ekvadors í London myndi skila gæðaminna viðtali, og að hann þyrfti að koma til Svíþjóðar hvort sem er ef málið fer fyrir rétt í fram­tíðinni,“ sagði hún í tilkynningu um málið. Nú sé tíminn hins vegar að renna út því hluti málanna gegn honum fyrnist í ágúst. Þess vegna hafi hún ákveðið að bjóðast til þess að fara til London.

Handtöku­skipun á hendur Assange vegna kynferðis­brota var gefin út í ágúst 2010. Hann hefur neitað sök og ekki viljað fara til Svíþjóðar vegna þess að hann telur að þaðan yrði hann fram­seldur til Banda­ríkjanna.

Kristinn Hrafnsson, talsmaður Wikileaks, segir í samtali við AP frétta­stofuna að þessi afstöðu­breyting saksóknara sé sigur fyrir Assange. Hann gagnrýndi þó harðlega að svona langan tíma hefði tekið að koamst að þessari niður­stöðu. Í fjögur og hálft ár hefði því verið haldið fram að saksóknari gæti ekki komið til London því það yrði ólöglegt.

Einn lögmanna Assange, Per Samuelsson, fagnaði einnig þessu tilboði saksóknara og sagði líklegt að Assange myndi fallast á yfirheyrslu í London. „Þetta er það sem við höfum krafist í fjögur ár. Julian Assange vill vera yfir­heyrður svo hægt sé að hreinsa hann af þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár