NATO með nýja áætlun í gangi á norðurslóðum

NATO sagði að þessi „fjölþætta aðgerð“ myndi í upphafi sameina verkefni sem aðildar­ríki banda­lagsins eru þegar að framkvæma á svæðinu. Áætlunin – Arctic Sentry – er hluti af samkomu­laginu sem róaði ásókn Donalds Trump í Grænland.

Róast
Róast Donald Trump hefur látið af áður lát­lausum yfir­lýs­ingum sínum um að Banda­ríkin taki yfir Grænland til að tryggja öryggi á norð­ur­slóðum. Mynd: AFP

Atlantshafs­bandalagið, NATO, tilkynnti í dag að ný aðgerð til að efla öryggi á norðurslóðum væri hafin. Þetta er gert til að sefa Donald Trump Bandaríkja­forseta eftir að hann dró til baka kröfur sínar um að taka yfir Grænland. 

„Arctic Sentry undir­strikar skuld­bindingu banda­lagsins til að vernda aðildar­ríki sín og viðhalda stöðug­leika á einu af hernaðar­lega mikil­vægustu og umhverfis­lega erfiðustu svæðum heims,“ sagði Alexus Grynkewich, bandarískur hers­höfðingi og yfir­hers­höfðingi banda­manna í Evrópu, í yfir­lýsingu. 

NATO sagði að þessi „fjölþætta aðgerð“ myndi í upphafi sameina verkefni sem aðildar­ríki banda­lagsins eru þegar að framkvæma á svæðinu, svo sem komandi æfingar Noregs og Danmerkur.

Óljóst var hvort nýja aðgerðin myndi fela í sér að meiri hernaðar­geta yrði send á svæðið.

Hótanir Trumps gagnvart Grænlandi í síðasta mánuði – sem hann byggði á meintri ógn frá Rússlandi og Kína á norðurslóðum – steyptu Atlantshafs­bandalaginu í dýpstu kreppu sem banda­lagið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár