Rússar hóta „hernaðarlegum“ aðgerðum verði af auknum umsvifum á Grænlandi

Sergei Lavrov, utan­ríkis­ráðherra Rússlands, varar við hernaðar­legum gagn­aðgerðum Rússlands ef Vestur­lönd auka umsvif á Grænlandi.

Rússar mun grípa til hernaðarlegra „gagn­aðgerða“ ef Vestur­lönd auka hernaðar­umsvif sín á Grænlandi. Þetta segir Sergei Lavrov, utan­ríkis­ráðherra Rússlands.

Nokkur Evrópu­lönd hafa sent litlar hersveitir til Grænlands undan­farnar vikur eftir að Donald Trump forseti sagði ítrekað að hann vildi innlima eyjuna. 

„Að sjálfsögðu, ef til hervæðingar Grænlands kemur og hernaðar­máttur verður byggður upp sem beinist gegn Rússlandi, munum við grípa til viðeigandi gagn­aðgerða, þar á meðal hernaðarlegra og tæknilegra,“ sagði Lavrov í ræðu þar sem hann ávarpaði rússneska þingmenn.

Grænland – þar sem búa um 57.000 manns – hefur verið sjálf­stjórnar­svæði Danmerkur í áratugi.

„Ef til her­væð­ingar Græn­lands kemur og hern­að­ar­máttur verður byggður upp sem bein­ist gegn Rúss­landi, munum við grípa til við­eig­andi gagn­að­gerða“

Trump dró í síðasta mánuði til baka hótanir um að taka Grænland yfir eftir að hafa sagt að hann hefði gert „ramma­samkomulag“ við …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár