Russell Brand hættir við að kjósa ekki og styður Verkamannaflokkinn

Grín­istinn og aðgerða­sinninn Russell Brand hefur lýst yfir stuðningi við Verkamanna­flokkinn fyrir kosningarnar í Bretlandi á fimmtudag. Brand segir í nýju myndbandi að Ed Miliband, leiðtogi Verkamanna­flokksins, muni hlusta á almenning. Brand tók viðtal við Miliband fyrir nokkrum dögum síðan. Í nýja mynd­bandinu segir hann að Englendingar þurfi að kjósa til þess að koma af stað byltingu.

„Það sem ég heyrði Ed Miliband segja er að ef við tölum, þá mun hann hlusta. Á þessum grund­velli held ég að við höfum ekki um neitt annað að velja en grípa til aðgerða til þess að binda endi á þá hættu sem stafar af Íhalds­flokknum. David Cameron finnst ég kannski vera djók en mér finnst ekkert fyndið við það sem Íhalds­flokkurinn hefur verið að gera þessu landi, og við verðum að stöðva hann.“

Miliband heimsótti Brand í síðustu viku og það þótti áhættu­samt. Þeir ræddu saman um ýmislegt, og í kjölfar viðtalsins sagði David Cameron að viðtalið og mennirnir tveir væru „djók“.

Þetta er talsverð breyting á afstöðu grín­istans, en hann hefur löngum hvatt fólk til þess að kjósa ekki, vegna þess að allir flokkar séu eins og það virki ekkert að kjósa. Þetta kom meðal annars fram í viðtali sem Jeremy Paxman tók við hann fyrir tveimur árum síðan.

„Ég veit að ég hef verið „herra ekki kjósa“ en það sem ég meina er að stjórnmál eru ekki eitthvað sem við getum aðeins haft áhuga á einu sinni á fimm ára fresti, ekki bara í kosningum. Lýðræði er nokkuð sem við eigum alltaf að hafa áhuga á og taka þátt í.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár