Tíu mikilvægustu hlutirnir í heiminum í dag

Business Insider tekur reglulega saman lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag.


  1. Búið er að handtaka skip­stjóra og áhöfn bátsins sem hvolfdi á Miðjarðar­hafi um helgina með þeim afleiðingum að mörg hundruð létust. Áhöfnin er ákærð fyrir mansal.

  2. Evrópu­sambandið mun formlega ásaka rússneska gasfyrirtækið Gazprom um að rukka viðskipta­vini sína í Austur-Evrópu of mikið.

  3. Bandaríski sjóherinn hefur sent skip að ströndum Jemens í kjölfar frétta um að írönsk skip séu á leið þangað til að vopna uppreisnar­menn.

  4. Evrópu­sambandið hefur birt tíu atriða aðgerðar­áætlun sem ætlað er að stemma stigu við smygli á fólki yfir Miðjarðar­hafið.

  5. Ástandið í Grikk­landi er orðið svo alvarlegt að Credit Suisse hefur hafið útgáfu á vikulegri skýrslu þar sem farið er yfir alla þróun í samninga­viðræðunum við Evrópu­sambandið.

  6. Xi Jinping, forseti Kína, og Shinzo Abe, forsætis­ráðherra Japans, eru á leið til Indónesíu til að vera viðstaddir Asíu-Afríku ráðstefnuna, sem var komið á laggirnar fyrir 60 árum til að mótmæla nýlendu­stefnunni.

  7. Minnst þrír eru látnir eftir ofsaveður í Ástralíu.

  8. Google hefur uppfært algrím sitt í farsímum þannig að vefsíður, sem henta vel til lestrar í snjall­símum, birtast ofar í leitar­niðurstöðum en aðrar síður.

  9. Nemandi í Barcelona myrti kennarann sinn með krossboga og hníf, en vegna aldurs verður hann mögulega ekki sóttur til saka.

  10. Banvæn fugla­flensa hefur gert vart við sig í Iowa, á búi með milljónum hæna. Þetta er versta tilvik fugla­flensu hingað til í Banda­ríkjunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár