Ofbeldi í sænskum grunnskóla tengist sparnaði í skólakerfinu

Lítill hópur nemenda í grunn­skóla í Malmö hefur undan­farna mánuði gengið svo hart fram að skólanum var lokað á föstudag. Kennsla hófst aftur í dag en ákveðið hefur verið að grípa til ýmissa aðgerða til að koma í veg fyrir hótanir og ofbeldi sem kennarar og nemendur segja að hafi fyrir löngu gengið allt of langt. Þessi frétt hefur verið áberandi í sænskum miðlum síðustu daga en hún ætti ekki að snúast eingöngu um lítinn hóp sem þrífst ekki innan ramma skóla­kerfisins. Saga Värner Rydénskolan fjallar ekki hvað síst um sparnað í skóla­kerfinu og skelfilegar ákvarðanir skóla­yfirvalda þrátt fyrir ítrekuð varúðar­merki.

Värner Rydénskolan er grunn­skóli í Rosengård hverfinu í Malmö þar sem innflytjendur eru í miklum meirihluta. Hverfinu er stundum lýst sem gettói í fjöl­miðlum en sú lýsing á varla við rök að styðjast. Blaða­maður Guardian sagði í grein árið 2010 að hann vissi ekki um neitt annað gettó með breiðum og vel merktum hjóla­stígum þar sem miðaldra konur hjóla heim til sín með innkaupa­poka. Hins vegar má ekki gera lítið úr því að félagsleg vandamál eru algeng í hverfinu, atvinnu­leysi mikið og menntunar­stig lágt, enda er þetta oft fyrsta stopp innflytjenda við komuna til Svíþjóðar.

Frá því að vera bestur yfir í að vera verstur


Skólinn umræddi var í mörg ár besti grunn­skóli hverf­is­ins og í kringum með­al­tal þegar allir grunn­skólar í Malmö voru skoð­aðir. Ástæðan var sú að upp­töku­svæði skól­ans var stórt og nem­endur komu gjarnan úr fjöl­skyldum sem höfðu skapað sér líf í Svíþjóð, hlotið menntun og voru með vinnu. Ef til vill var það þess vegna sem skóla­yf­ir­völd ákváðu að fella aðra grunn­skóla inn í þann sem tal­inn var bestur.

Frá árinu 2011 hefur verið stöðug krafa um niður­skurð hjá grunn­skólunum í Rosengård, þrátt fyrir að þar væru nemendur sem einna líklegastir væru til að lenda utangarðs vegna lítils félags­legs stuðnings. Í desember árið 2012 var nokkrum kennurum sagt upp í Värner Rydénskolan og þremur níundu bekkjum slegið saman í tvo. Í janúar árið 2013 er lögð sparnaðar­krafa upp á 2,5 milljónir sænskar á skólann og í heild eiga grunn­skólar í Rosengård að spara átta milljónir sænskar.

Sænska knattspyrnu­goðsögnin Zlatan Ibrahimovic ólst upp í Rosengård hverfinu í Malmö. Hér leikur hann fótbolta við börn úr hverfinu, við formlega vígslu á fótbolta­velli í hverfinu sem Zlatan lék sér á þegar hann var barn.

Sænska knattspyrnugoðsögnin Zlatan Ibrahimovic ólst upp í Rosengård hverfinu í Malmö. Hér leikur hann fótbolta við börn úr hverfinu, við formlega vígslu á fótboltavelli í hverfinu sem Zlatan lék sér á þegar hann var barn.
Sænska knatt­spyrnu­goð­sögnin Zlatan Ibrahimovic ólst upp í Ros­engård hverf­inu í Malmö. Hér leikur hann fót­bolta við börn úr hverf­inu, við form­lega vígslu á fót­bolta­velli í hverf­inu sem Zlatan lék sér á þegar hann var barn.

Á sama tíma kemur í ljós að einkunnir nemenda hafa versnað mikið og innan við 40 prósent ná lágmarks­einkunn til að komast í mennta­skóla. Í ágúst sama ár eru þrír grunn­skólar sameinaðir og í kjölfarið berast fréttir af auknu ofbeldi, verri hegðun og aðstæðum sem ekki er hægt að bjóða nemendum eða kennurum upp á. Vorið 2014 birtast fréttir í sænskum miðlum þar sem rektor skólans lýsir erfið­leikum í kjölfarið á sameiningunni og þar kemur jafnframt fram að skólinn er orðinn versti skóli Malmö þegar litið er á einkunnir. Á tímabili í fyrra hringdu átján kennarar sig inn veika og það gerist margoft að ekki er hægt að fá afleysingar­kennara.

Lítill hópur sem skemmir fyrir öllum


Hópurinn sem hefur haft sig mest frammi í skól­anum er ekki stór. Þarna er um að ræða um það bil tíu drengi sem virð­ast ekki þríf­ast innan ramma hins hefð­bundna skóla­kerfis og svo kannski tíu fylgj­endur. Fréttir hafa borist af eit­u­lyfja­sölu á skóla­lóð­inni og í febr­úar var fjallað um tvo menn sem hefðu farið inn í grunn­skóla í Malmö og sagst tengj­ast Isis sam­tök­unum. Ekki var tekið fram hvaða skóli þetta hefði verið en að öllum líkum var þetta Värner Rydénskolan.

Eftir fundarhöld gærdagsins hefur verið ákveðið að grípa til ýmissa ráðstafanna til að ná utan um ástandið í skólanum. Í grunninn snúast þær um fjölgun starfs­fólks og stjórn­enda til þess að ná betur utan um starfsemina. Rætt hefur verið að flytja nokkra nemendur í aðra skóla til að brjóta upp hópinn auk þess sem rætt verður við nemendur og foreldra og þeir beðnir um tillögur að úrbótum.

Breyta þarf grunnskólakerfinu í Svíþjóð


Stóra spurn­ingin er hins vegar hvers vegna þetta hafi ekki gerst fyrir löngu. Eða öllu heldur, miðað við sög­una og varn­að­ar­orð mátti alltaf gera ráð fyrir að sparn­aður kæmi einna harð­ast niður á þessum skólum. Gustav Fridolin, mennta­mála­ráð­herra Sví­þjóðar, segir að ástandið sé að hluta til vegna þess kerfis sem Svíar hafa byggt upp. For­eldrar hafa val um það í hvaða skóla þeir senda barnið sitt, en á móti kemur að skól­arnir geta einnig valið nem­endur inn í skól­ana ef umsóknir eru of margar. Þetta hefur þýtt að sumir skólar drag­ast aftur úr sem aftur skapar víta­hring þar sem nem­endur sem eru betur staddir félags­lega geta ekki hugsað sér að stunda nám í þeim. Samkvæmt OECD er Svíþjóð eina landið í heim­inum sem er með fullt frelsi þegar kemur að því að velja skóla, án þess að grípa til sér­stakra ráð­staf­ana til að koma í veg fyrir að sumir skólar drag­ist aftur úr.

Gustav Fridolin, menntamála­ráðherra Svíþjóðar (til vinstri), ásamt Stefan Lofven forsætis­ráðherra Svía.

Gustav Fridolin, menntamálaráðherra Svíþjóðar (til vinstri), ásamt Stefan Lofven forsætisráðherra Svía.
Gustav Fridolin, mennta­mála­ráð­herra Sví­þjóðar (til vinstri), ásamt Stefan Lofven for­sæt­is­ráð­herra Svía.

Umræðan um Värner Rydénskolan hefur því hraðað umræðunni um breytingar á skóla­kerfinu í Svíþjóð og aukna aðkomu ríkisins á kostnað sjálf­stæðis sveitar­félaga. Skoða á þær aðferðir sem notaðar eru í skólum sem taldir eru standa sig best og freista þess að yfirfæra þær á þá skóla sem standa sig verst. Tilhneyginging hefur verið sú að framlag til nemenda og skóla eigi að vera jöfn. Staðreyndin er hins vegar sú að ákveðnir skólar þurfa fleiri kennara og jafnvel hærri laun þar sem að meirihluti nemenda kemur úr erfiðum félags­legum aðstæðum og talar ekki tungu­málið við upphaf náms. Skipulag grunn­skóla­kerfisins kemur því beint að umræðum um innflytjendur í Svíþjóð, móttöku þeirra og þá aðstoð sem þeir fá við að aðlagast samfélaginu.

Fridolin, åk till Wärner Ryden skolan i Malmö. du skulle ju fixa skolan. Denna stängdes idag på grund av osäkert för lärare o elever

— Drevharen (@DrevHaren) March 1, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár