Mjög strangtrúaðir gyðingar aftur komnir í stjórn í Ísrael

Benjamin Netanjahú hefur tekist að mynda nýja ríkis­stjórn í Ísrael, meðal annars með hjálp flokka mjög strang­trúaðra gyðinga. Samsteypu­stjórn forsætis­ráðherrans er mjög tæp, með 61 þingsæti af 120 sætum í þinginu. AP frétta­stofan greinir frá þessu.

Strang­trúaðir gyðingar í flokkunum Shas og United Torah Judaism, hafa verið í stjórnar­andstöðu undan­farin tvö ár, en vegna hlutfalls­kerfisins í Ísrael hafa þeir notið áhrifa umfram fylgi. Þeir hafa því oft verið í þeirri stöðu að verja ríkis­stjórnir og tryggja þeim meirihluta í þinginu. Vegna stöðu sinnar hafa þeir fengið í gegn ýmsar undanþágur fyrir strang­trúaða, eins og undanþágu frá annars lögbundinni herskyldu. Þeir hafa líka fengið háar fjárhæðir frá ríkinu í sérstakt skóla­kerfi sitt, þar sem mikil áhersla er lögð á að kenna trúna, en ekki mikil áhersla á stærð­fræði, ensku eða tölvu­kunnáttu. Þessar undanþágur og sérstaka kerfi hefur lengi valdið úlfúð meðal annarra.

Fráfar­andi ríkis­stjórn landsins samþykkti lög sem miðuðu að því að breyta þessu. Nú er hins vegar komin til valda ríkis­stjórn sem mun stöðva breytingarnar strax.

Ríkis­stjórnar­samstarfið hefur verði gagnrýnt talsvert, bæði innan og utan raða flokks Netanjahús. Hann er talinn hafa gert varhuga­verð samkomulag við aðra flokka sem muni kosta ríkið hundruð milljóna dala. Utan­ríkis­ráðherrann Avigdor Lieberman neitar til dæmis að taka sæti í þessari ríkis­stjórn, og segir að hann geti ekki sætt sig við áfram­haldandi undanþágur til handa strang­trúuðum.

Mjög strang­trúaðir eru um átta prósent af átta milljónum Ísraels­manna. Atvinnu­leysi er meira meðal þeirra en annarra hópa, og aðallega meðal karla sem fá bætur frá ríkinu og stunda trúarlegt nám. Undan­farið hefur hins vegar atvinnu­þátttaka þessa hóps aukist, þannig að 70% kvenna eru í vinnu og 45% karla. Sérfræðingar eru sammála um að ef atvinnu­þátttaka þessara karla eykst ekki umtals­vert muni það þýða mikla kreppu í ísraelsku efnahags­lífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár