Gunnar Bragi: „Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum“

Þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins, sem kall­aði mennta­mála­ráð­herra meðal ann­ars „hel­vítis tík“ sem hjóla ætti í, og sagð­ist hafa kraf­ist per­sónu­legs greiða fyrir skipun sendi­herra, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann áminnir fólk um að líta í eigin barm fremur en að dæma hann.

Að mati Gunnars Braga Sveins­sonar, þing­manns Mið­flokks­ins, ætti fólk að líta í eigin barm áður en það dæmir hann fyrir að hafa kallað Lilju Alfreðs­dóttur menna­mála­ráð­herra „hel­vítis tík“ fyrir að fylgja ekki Mið­flokknum að máli, mælst til þess að hjólað yrði í hana, og sagst hafa skipað„fávit­ann“ Árna Þór Sig­urðs­son sendi­herra sam­hliða Geir H. Haarde til að stýra umræð­unni, auk þess sem hann hefði krafið Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um að fá sjálfur greiða á móti þegar á þyrfti að halda.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Gunnari Braga sem hann sendi rétt í þessu. Hann seg­ist hafa orðið fyrir áfalli þegar hann varð þess áskynja hvaða orð­færi hann hefði notað á óform­legum bar­fundi með þing­mönnum Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins þriðju­dags­kvöldið 20. nóv­em­ber.

Gunnar Bragi hefur hafnað því að segja af sér þing­mennsku vegna fram­komu sinnar, en nú seg­ist hann hafa ákveðið að taka sér leyfi frá þing­störfum.

„Öllu jafna auð­veld­ara að dæma en að fyr­ir­gefa“

„Fyrir tíu dögum sýndi ég mikið dóm­greind­ar­leysi og hafði uppi orð sem eru engum sæm­andi. Það var mér mikið áfall að sjá hvaða orð­færi ég við­hafði og mun taka mig tíma að vinna úr því með vinum og fjöl­skyldu. Ég harma að hafa sært sam­starfs­fé­laga mína og fleiri og tek ábyrgð á hegðun minni. Vil ég þó segja að mis­tök gerum við mann­eskj­urnar víst og er öllu jafna auð­veld­ara að dæma en að fyr­ir­gefa. „Sá yðar er synd­laus er kasti fyrsta stein­inum“. Ég mun hafa það í huga hér eftir og hvet ykkur til þess sama. Ég vona að hlut­að­eig­andi fyr­ir­gefi mér þessa hegðun en vegna hennar hef ég ákveðið að taka mér leyfi frá þing­störfum.“

Sagði hann geta „riðið“ ráðherra

Stundin hefur undir höndum upp­töku af sam­skiptum þing­mann­anna, en þing­menn­irnir voru háværir og vakti hegðun þeirra athygli á Klaustur bar við hlið Alþingis og gegnt Dóm­kirkj­unni.

Gunnar Bragi segir á upp­tök­unni meðal ann­ars að Oddný Harð­ar­dóttir, þing­kona og fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sé „apa­köttur“ og sagði aðra þing­konu hafa reynt að nauðga sér, sem hann hefur nú dregið til baka.

Í upp­tök­unni heyr­ast Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður flokks­ins, og Gunnar Bragi meðal ann­ars ræða Lilju Alfreðs­dóttur, sem ákvað að ganga ekki til liðs við Mið­flokk­inn úr Fram­sókn­ar­flokknum. Þingmenn Mið­flokks­ins virt­ust telja sig eiga harma að hefna gagn­vart Lilju. „Ef að Lilja hefði ein­hvern áhuga á að tengj­ast við okkur þá hefði hún hringt í sumar,“ sagði Gunnar Bragi. „Auðvitað“ og „alveg aug­ljóst“ svara Sig­mundur Davíð og Bergþór.

„Hjólum í hel­vítis tík­ina! Það er bara málið.“

Gunnar Bragi hróp­aði í kjöl­farið: „Henni er bara fokk­ing sama um hvað við erum að gera. Hjólum í hel­vítis tík­ina! Það er bara málið. Af hverju erum við að hlífa henni? Ég er að verða brjál­aður! Af hverju erum við að hlífa henni?“

Sig­mundur svar­aði á þá leið að hann skildi sjón­ar­miðin mjög vel. „Ég get algjör­lega sjálfum mér um kennt,“ sagði hann, en Lilja var skipuð utan­rík­is­ráð­herra að hug­mynd hans árið 2016 eftir að Panama­skjölin komu fram og Sig­mundur þurfti að segja af sér emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra.

„Ég er búinn að láta þessa konu yrða á mig aftur og aftur,“ sagði Sig­mundur.

„Það hefur engin gugga teymt mig meira á asna­eyr­unum en hún, sem ég hef ekki fengið að ríða,“ bætti Bergþór við, og vís­aði þar lík­lega til Lilju. „Og hún hefur teygt ykkur miklu lengur. Ég er bara nýbú­inn að kynn­ast henni. Þegar við hitt­umst í skötu­veisl­unni fyrir nokkrum árum þá vissi ég ekki að hún væri til.“

„Það er alveg rétt hjá þér,“ sagði Sig­mundur Davíð. „Henni er ekki treystandi og hún spilar á karl­menn eins og kven­fólk kann.“

„Who the fuck is that bitch?“ bætti einn þing­mann­anna við um Lilju og annar tók undir: „Fuck that bitch“.

„Þú getur riðið henni, skil­urðu,“ sagði Bergþór og virt­ist einnig vísa til Lilju. Bergþór er einnig kom­inn í tíma­bundið leyfi.

Lilja hefur svarað fyrir sig, segir ummæli þing­manna Mið­flokks­ins „óaf­sak­an­leg“ og þau lýsi „van­mætti, ótta og úreltum við­horfum“.

Vildi greiða fyrir sendi­herra­skipanGunnar Bragi heyr­ist hér ræða plott sitt um skipan sendi­herra, sem átti að leiða til þess að hann fengi sjálfur greiða þegar á þyrfti.

Sagði „grafalvarlegt“ að taka upp ummælin

Gunnar Bragi hefur sagt að hann telji grafal­var­legt mál að ummæli hans á barnum hafi verið tekin upp. „Það lítur alltaf illa út ef stjórn­mála­menn eru að gera eitt­hvað sem er umdeilt. Það er bara þannig. En það sem mér finnst, og ég verð að fá að segja hérna: Auðvitað skil ég að menn vilji tala um þessi orð. En er það virki­lega þannig að mönnum finnst það bara í lagi að það sé verið að taka upp sam­töl fólks? Það er grafal­var­legt mál.“

Hann hefur jafn­framt sagst hafa verið „að ljúga“ þegar hann ját­aði að hafa beðið Bjarna Bene­dikts­son um greiða end­ur­gold­inn fyrir að skipa Geir sendi­herra. 

Á upp­tök­unni má hins vegar heyra að Sig­mundur Davíð stað­festir orð Gunnars Braga, sem Gunnar segir nú að hafi verið lygi. „Bjarni [Bene­dikts­son] fór út um víðan völl en nið­ur­staðan var sú að hann hefði fall­ist á það að ef þetta gengi eftir, þá ætti Gunnar inni hjá Sjálf­stæð­is­mönnum. […] Næsta skref var að hitta Bjarna með Guðlaugi Þór [Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra]. […] Bjarni má eiga það að hann fylgdi mál­inu vel eftir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár