Olíuverð ekki lægra síðan 2003 því Íran eykur framboð

Viðskipta­þvingunum á Íran var létt um helgina sem hefur bein áhrif á heims­markaðsverð með olíu. Íranir geta strax aukið framboð sitt um helming.

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur ekki verið jafn lágt síðan 2003. Það er vegna offramboðs á markaði.
Heims­mark­aðs­verð á olíu hefur ekki verið jafn lágt síðan 2003. Það er vegna offram­boðs á mark­aði. Mynd: Picasa 2.6

Heims­markaðsverð á olíu hefur ekki verið lægra síðan árið 2003 vegna aukins útflutnings Íran á olíu eftir að viðskipta­þvingunum á landið var lyft um helgina. Hlutdeild Íran á markaðinum árið 2011 áður en til þvingana kom var um þrjár milljónir tunna á dag. Undan­farin ár hefur útflutningurinn numið um milljón tunnum á dag. Íranir segjast nú tilbúnir til að auka útflutning sinn um 500 þúsund tunnur á dag. Íran er ásamt helstu olíu­ríkjum heims, meðlimur í Samtökum olíu­framleiðslu­ríkja (OPEC).

Aukin umsvif Írani á olíu­markaði og offramboð hefur gert það að verkum að hráolíu­verð hrapaði í 27,67 dollara á tunnuna í morgun. Það er lægra en verðið hefur verið síðan 2003. Hæst fór heims­markaðsverð á olíu í rúmlega 130 dollara á tunnuna í júlí 2008 eftir að hafa hækkað jafnt og þétt síðan 2002. Verðið hrundi svo í efnahags­hruninu árið 2008 en náði jafnvægi í um 100 dollurum árið 2011 og hafði haldist nokkuð stöðugt þar til um mitt ár 2014.

Efni sem var innfellt hér (embed.chartblocks.com) er ekki lengur aðgengilegt.

Stuart Gulliver, framkvæmda­stjóri HSBC, sagði á fjármála­ráðstefnu í Asíu í dag að hann teldi að olíuverð myndi ná jafnvægi í á milli 25 til 40 dollurum á næstu 12 mánuðum. „Stærstu fram­leiðendur eru að flytja 2 til 2,5 milljón tunnur umfram eftir­spurn á hverjum degi. Spurningin er því hversu lengi þeir geta haldið áfram offramleiðslunni,“ sagði hann.

Viðskipta­þvinganir á Íran voru felldar niður um helgina samkvæmt kjarnorku­samkomulagi Bandaríkjann og Evrópu­sambandsins við Íran. Íranir stöðvuðu kjarnorku­framleiðslu sína gegn því að viðskipta­þvinganirnar yrðu felldar niður.

Framleiðslu­aukning um hálfa milljón tunna á dag er talin vera auðsótt í Íran en markaðs­greinendur sem frétta­stofa Reuters ræddi við telja aukningu umfram það verða erfiðari. „Íran þarf mikla erlenda fjár­festingu og tækni til að endur­reisa framleiðslu­getu sína,“ hefur Reuters eftir grein­endum Morgan Stanley.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár