Gana fær 200 milljarða lán hjá AGS

Afríku­ríkið Gana hefur fengið lán hjá Alþjóða­gjaldeyris­sjóðnum (AGS) upp á einn milljarða punda, eða sem nemur ríflega 200 milljörðum króna, vegna efnahags­erfiðleika sem landið glímir nú við. Ástæðuna fyrir erfið­leikunum má rekja til hratt fallandi verðs á mikil­vægum útflutnings­vörum landsins, þar á meðal kakó­baunum og olíu. Gull er einnig mikilvæg útflutnings­vara í Gana, en áratuga­hefð er fyrir gullnámu­starfsemi í landinu.

Eftir mikið hagvaxtar­skeið, þar sem hagkerfið hefur vaxið um átta prósent á ári, er nú kominn mun meiri „kuldi“ í kerfið. Hagvaxtar­spár hafa verið endur­skoðaðar og er því nú spáð að hagvöxtur verði 4,2 prósent í landinu. Þessar miklu sviptingar hafa leitt til fjármagns­flótta frá landinu, og töldu stjórn­völd ráðlegt að kalla til Alþjóða­gjaldeyris­sjóðinn áður en staðan yrði verri, að því er fram kemur í frétt breska ríkis­útvarpsins BBC.

Vonir standa til þess að hagkerfið rétti hratt úr kútnum, og að niður­sveiflan verði skammvinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár