Sprotar úr Startup Reykjavík hafa sótt 650 milljónir króna

Sprota­fyrirtæki sem farið hafa í gegnum Startup Reykjavík viðskipta­hraðalinn, sem Arion banki og Klak Innovit standa að, hafa sótt sér 650 milljónir króna frá því að hann hófst árið 2012. Megnið af fénu hefur komið í gegnum framlög úr styrktar- og rannsóknar­sjóðum, en einnig frá nýjum hluthöfum og fjár­festum. Samtals eru sprota­fyrirtækin 37 sem hafa náð sér í þetta fjármagn. Einar Gunnar Guðmundsson, sem hefur nýsköpunarmál hjá Arion banki á sinni könnu, segir það eitt og sér vera mikinn og augljósan ávinning af viðskipta­hraðlinum til þessa. Margt annað megi nefna sem árangur, eins og fjölda nýrra starfa hjá þessum fyrir­tækjum.

Hann segir verkefnið hafa verið lærdóms­ríkt og án nokkurs vafa hjálpað til við að örva sprota- og nýsköpunar­umhverfið á Íslandi eftir hrun fjármála­kerfisins, og að það sé líflegt um þessar mundir. „Við erum ótrúlega ánægð og stolt af þessu,“ segir Einar Gunnar. Nauðsynlegt sé þó að styrkja aðgengi sprota­fyrirtækja að fjármagni, og bindur Einar Gunnar vonir við stofnun nýrra fjár­festinga­sjóða í þeim efnum. Til framtíðar þurfi að leita út fyrir landsteinanna og einnig að fá fjárfesta hér á landi til þess að sýna þessum geira meiri áhuga.

Markmið aðstand­enda Startup Reykjavík sé að horfa til langrar framtíðar, eins og þurfi að gera þegar um er að ræða frumkvöðla- og nýsköpunar­starf.

Kjarninn hefur fylgt Startup Reykjavík verk­efninu eftir á þessu ári, og fjallaði meðal annars um öll fyrir­tækin sem fóru í gegnum hraðalinn, og fleiri fyrirtæki sem hafa farið í gegnum það sársauka­fulla ferli að koma fótunum undir starfsemi alveg frá hugmynda­stigi. Þá voru fyrirtæki heimsótt sem hafa verið að náð miklum árangri í innra starfi þegar kemur að nýsköpun við vöruþróun, og má þar meðal annars nefna TM Software, sem hefur marg­faldað umsvif sín eftir að starfs­menn fyrir­tækisins byggðu upp Tempo hugbúnaðinn, sem í dag er seldur til meira en sex þúsund viðskipta­vina um allan heim.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar hjá sumum fyrir­tækjanna á þeim tíma sem Kjarninn byrjaði að fjalla markvisst um starfsemina, og eru þau nú mörg hver að vinna að því að sækja sér fé til vaxtar og uppbyggingar.

https://vimeo.com/115519990

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár