Gummi Páls lenti í ránstilraun í Barcelona

Bagga­lúturinn og fjölmiðla­maðurinn Guðmundur Pálsson lenti í miður skemmtilegri lífs­reynslu í Barcelona á sunnudags­kvöldið, þegar gerð var tilraun til að ræna hann.

„Ég var nýbúinn að skutla tengda­fjöl­skyldunni og stráknum okkar, sem voru hjá okkur um páskana, út á flugvöll og var kominn inn í borgina aftur, þegar leigu­bílstjóri sem var stopp við hliðina á mér á umferðar­ljósum fór að senda mér skilaboð með allskonar handapati. Benda á augun á sér og gefa mér allskyns merki. Ég skildi ekki upp eða niður. Hélt ég hefði svínað fyrir hann eða farið yfir á rauðu og hann væri að segja mér að fara varlega. Svo uppgötvaði ég að það var sprungið á bílnum. Það var ekki hægt að stöðva bílinn þar sem ég var, þannig að ég neyddist til að keyra hann lengra en ég hefði viljað, en náði svo loks að stoppa við umferðar­ljós í hverfinu okkar,“ segir Guðmundur í samtali við Kjarnann.

Tilraunir til að skipta um dekk í myrkrinu gengu illa og því neyddist Guðmundur til að þræla bílnum á sprungnu dekki í bíla­kjallara, þar sem þau leigja stæði fyrir bílinn.

Guðmundur hefur á undan­förnum mánuðum ferðast um þjóðvegi Evrópu ásamt eiginkonu sinni og tveimur ungum börnum á fjölskyldu­bílnum sem þau fluttu með úr Vestur­bænum í Reykjavík yfir á megin­landið. Guðmundur hefur fært viðburða­ríka ferðasögu fjöl­skyldunnar til heimilda í hlaðvarps­þáttunum Pabbi þarf að keyra, sem aðgengi­legir eru í Hlaðvarpi Kjarnans.

Mynd af Fésbókar­síðu Gumma Páls.

Mynd af Fésbókarsíðu Gumma Páls.
Mynd af Fés­bók­ar­síðu Gumma Páls.

Eftir raunir sunnudags­kvöldsins setti Guðmundur vara­dekkið undir fjölskyldu­bílinn og hélt á verkstæði með sprungna dekkið. „Þegar ég mætti á verk­stæðið spurðu þeir mig hvort dekkið hefði verið farþegamegin að aftan. Þegar ég jánkaði því, báðu þeir um að fá að sjá dekkið og sýndu mér hvar stungið hafði verið gat á það með hnífi. Þetta væri svona dæmigert trix. Líklega hefðu tveir bandítar á vespu verið að verki. Það átti sem sagt að ræna kallinn við vega­kantinn. Sennilega hefur leigu­bílstjórinn séð til þeirra og verið að vara mig við.“

Guðmundur segir að útlenskar númera­plötur hafi vafalaust dregið athygli þjófanna að bílnum, og sömuleiðis það að hann hafi verið einn á ferð. „Þeir hafa sennilega kíkt í bílinn á meðan ég lá undir honum þarna í myrkrinu við umferðar­ljósin og ekki séð neitt þar til að hafa með sér,“ segir Guðmundur í samtali við Kjarnann aðspurður um manna­ferðir við bílinn þar sem hann stóð út í vegakanti. „Það var einhver umferð þarna, bílar og vespur sem stoppuðu við hliðina á mér. Ég skildi hurðina meira að segja eftir opna, þannig að ég hef verið auðveld bráð.“

Aðspurður um hvort sér hafi verið brugðið, svaraði Guðmundur: „Nei, ekki baun. Flestir sem eru rændir hérna eru rændir af því að þeir pössuðu sig ekki og það er sjaldan ofbeldi í spilinu.“

Reikna má með að ráns­tilrauninni verði gerð frekari skil í komandi hlaðvarps­þáttum af Pabbi þarf að keyra, en næsti þáttur fer í loftið á laugar­daginn klukkan 11:30.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár