Ekki sjálfgefið að flóttafólk geti valið sér búsetuland

Thomas de Maiziére innan­ríkis­ráðherra Þýska­lands segir að flótta­fólk sem fær skjól í Evrópu eigi ekki sjálf­krafa rétt á að velja sér búsetu­land. Ráðherrann lét þessi orð falla í viðtali við Der Tagesspiegel.

Ráðherrann situr í dag fund dóms- og innan­ríkis­ráðherra ESB landanna í Brussel þar sem ræða á málefni flótta­fólks. Samtals er talið að 160 þúsund flótta­menn hafi komið til Evrópu að undan­förnu. Í þessu mánuði einum hafa um 63 þúsund manns komið til München og borgar­stjórinn þar segir að borgin geti ekki, í bili að minnsta kosti, tekið við fleiri flótta­mönnum. Þýsku ríkis­járn­brautirnar, Deutche Bahn, hafa bætt við lesta­ferðum til Nordrhein-Westphalen og til Norður-Þýska­lands vegna flótta­mannanna.


Í áður­nefndu viðtali sagði þýski innan­ríkis­ráðherrann að Þjóð­verjar væru sannarlega tilbúnir að leggja sitt af mörkum og taka á móti stórum hópi flótta­fólks og það hefðu þeir vissulega gert. Fjöldinn væri hins vegar svo mikill að það væri ekki á færi neins lands að taka við svo mörgu fólki. „Þótt við Þjóð­verjar séum margir og landið stórt eru takmörk fyrir öllu,“ sagði ráðherrann. Hann sagði jafnframt að Evrópu­sambands­ríkjunum bæri skylda til að finna lausnir til að mæta vanda þess mikla fjölda sem hefði orðið að flýja heimaland sitt vegna átaka og ofsókna. „Þar má enginn láta sitt eftir liggja“ sagði ráðherrann. Ráðherrann sagði að þegar ákveðið var að hleypa flótta­fólki inn í Þýskaland, án þess að formleg skráning færi fram (sem lög gera ráð fyrir) hefði það verið gert til að afstýra algjöru neyðar­ástandi. Þótt ýmsir hafi orðið til að gagnrýna þá ákvörðun væri hann sann­færður um hún hafi verið rétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár