Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur reglulega saman lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum þann daginn. Hér er listinn yfir mikilvæga hluti á föstu­daginn langa.


  1. Andreas Lubitz leitaði upplýsinga um sjálfsvíg og öryggis­ráðstafanir í flug­stjórnar­klefum dagana áður en hann grandaði Germanwings-þotu sem hann stýrði.

  2. Skömmu eftir að greint var frá því að samkomulag hefði náðst um kjarnorkumál Írans sakaði utan­ríkis­ráðherra Írans Bandaríkja­menn um að segja ekki rétt frá innihaldi samkomu­lagsins.

  3. Hútar og aðrir uppreisnar­menn í Jemen náðu hverfi í borginni Aden á sitt vald í gær.

  4. Ríkis­stjórar í Arkansas og Indiana hafa báðir samþykkt lög sem kveða á um trúfrelsi.

  5. Nicola Sturgeon, leiðtogi Skoska þjóðar­flokksins, þótti standa sig best í kappræðum stjórnmála­leiðtoga í Bretlandi í gærkvöldi, samkvæmt könnun YouGov.

  6. Nú er komið í ljós að minnst 147 manns létust í árás á háskóla í norð­austurhluta Kenía, skammt frá landa­mærunum við Sómalíu.

  7. Þúsundir stúdenta komu saman í Montreal í Kanada til að mótmæla niður­skurði og aðhalds­aðgerðum.

  8. Fyrrum yfirmaður varnar­mála í Kína hefur nú verið ákærður fyrir mútur, misnotkun valds og að leka leynda­málum ríkisins.

  9. 19 ára breskur nemi, sem gekk til liðs við Íslamska ríkið, hefur sent fjöl­skyldu sinni bréf þar sem fram kemur að hún vilji koma aftur heim til Bretlands.

  10. Maður sem var týndur á hafi úti í tvo mánuði fannst í gær og var bjargað undan ströndum Norður-Karólínu.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár