Rafmagnsnotkun mun minni í ESB í ár

Alls minnkuðu aðildar­ríki Evrópu­sambandsins raforku­notkun sína um níu prósent í vor og byrjun sumars, miðað við sama tímabil í fyrra.

Frá Ítalíu í sumar. Raforkunotkun minnkaði einna mest í Suður-Evrópu, sérstaklega á Kýpur og Ítalíu
Frá Ítalíu í sumar. Raf­orku­notkun minnk­aði einna mest í Suður-Evrópu, sér­stak­lega á Kýpur og Ítalíu Mynd: EPA

Rafmagns­neysla flestra aðildar­ríkja Evrópu­sambandsins hefur verið töluvert undir meðaltali síðustu ára síðan í mars síðastliðnum. Þetta kemur fram í nýútgefnum tölum hagstofu Evrópu­sambandsins, Eurostat.

Samkvæmt tilkynningu Eurostat hefur lækkunin verið mest á meðal aðildar­ríkja sem reiða sig meira á ferðamanna­iðnaðinn, en hún nam meiri en tíu prósentum í Grikk­landi, Spáni, Króatíu, Kýpur, Póllandi og Slóveníu.

Mesta breytingin var á Kýpur, þar sem raforku­notkun milli mars og júní dróst saman um 14 prósent. Minnstu breytinguna má hins vegar sjá í Norður-Evrópu, en rafmagns­notkun í Eistlandi, Svíþjóð og Danmörku á mánuðunum mars til júní er nánast á pari við sama tímabil í fyrra.

Heildar­raforku­notkun allra aðildar­ríkja sambandins hefur svo dregist saman um tæpar 74 þúsund gígavatts­stundir í vor og byrjun sumars, en það er um níu prósentum minna en notað var í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár