Rússíbanareið framundan á mörkuðum? - Fjárfestar leiti skjóls

Grein­endur Royal Bank Scotland hafa ráðlagt viðskipta­vinum bankans að selja hlutabréf og setja peningana í ríkis­skuldabréf. Hvað er á seyði á mörkuðum? Sumir sjá árið 2008 teiknast upp.

Ráðlegging greinenda hjá Royal Bank of Scotland (RBS) til viðskipta­vina, um að selja öll hlutabréf og færa fjármuni í „skjól“, ríkis­skuldabréf eða annað, hefur vakið marga til umhugsunar um hvað sé á seyði á alþjóða­mörkuðum. Þessi ráðlegging bankans, sem breska ríkið á um 80 prósent hlut í eftir þjóð­nýtingu á haust­mánuðum 2008, kemur í kjölfarið á slæmum upphafs­dögum á mörkuðum á árinu og viðvörunum frá George Soros, fjár­festinum þekkta, en hann telur aðstæður nú líka sem sem voru fyrir hendi á árinu 2008, þegar fjármála­kreppa skall á með hruni banka og vantrausti á mörkuðum.

Í bréfi sínu til viðskipta­vina, sem er hluti af vikulegri útgáfu greinenda bankans, kemur fram að fjár­festar ættu að fara varlega á árinu 2016, og fátt bendi til annars en að verð­hjöðnun muni leika markaði grátt. Það ræður ekki síst miklu mikið verðfall á hrávöru, einkum og sér í lagi olíu. Hún hefur lækkað mikið að undan­förnu og kostar tunnan af hráolíu nú um 30 Bandaríkjdali og er talið líklegt að hún lækki enn meira ef olíu­framleiðslu­ríki taka ekki ákvörðun um að draga úr framboði, með því að minnka fram­leiðsluna meira en gert hefur verið.

Samkvæmt því sem fram kemur í bréfinu gæti hlutabréfa­verð fallið um 20 prósent og mikil hætta á að almennur slaki einkenni markaði, það er að eftir­spurn minnki mikið og fjár­festar haldi að sér höndum. Við slíkar aðstæður gerist aðeins eitt; hlutabréfa­verð lækkar og það hratt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár