Interpol lýsir eftir sex mönnum vegna FIFA spillingar

Alþjóða­lögreglan Interpol hefur lýst eftir sex mönnum í tengslum við spillingarmál Alþjóða­knattspyrnu­sambandsins FIFA. Tveir mannanna eru fyrrum embættis­menn FIFA, þeir Jack Warner og Nicolás Leoz. Hinir fjórir eru stjórn­endur stórra fyrir­tækja sem tengjast inn í málið, þrír eru frá Argentínu og einn frá Brasilíu.

Það eru þeir Alejandro Burzaco, Hugo Jinkis og Mariano Jinkis frá Argentínu og José Margulies frá Brasilíu. Argentínu­mennirnir eru stjórn­endur í markaðs­setningar­fyrirtækjum og Brasilíu­maðurinn er stjórn­andi útsendingar­fyrirtækja. Argentínu­mennirnir eru grunaðir um að hafa borgað yfir 100 milljónir dala í mútur til þess að tryggja sér útsendingar- og auglýsinga­rétt frá stórmótum í knatt­spyrnu. Jack Warner er svo frá Trinidad & Tobago og er fyrr­verandi vara­forseti FIFA auk þess sem hann hefur setið í stjórn og gegnt ýmsum stjórnunar­stöðum. Nicolás Leoz er frá Paragvæ og var í stjórn FIFA.

Interpol hefur sett mennina alla á það sem kallast red notice - sem þýðir að handtöku­skipun er í gildi á hendur þeim hvert sem þeir fara. Warner og Leoz hafa báðir verið hand­teknir í heima­löndum sínum, búið er að sleppa Warner og Leoz er í stofu­fangelsi.

Blatter líka til rannsóknar


Þessar fréttir koma í kjöl­far þess að greint var frá því í morgun að sak­sókn­arar og banda­ríska alrík­is­lög­reglan FBI eru að rann­saka Sepp Blatter, for­seta alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bands­ins FIFA, og aðild hans að ara­grúa spill­ing­ar­mála sem upp­lýst hefur verið um að hafi átt sér stað innan sam­bands­ins. Þetta hafði Reuters-frétta­stofan eftir ónafn­greindum heim­ild­ar­manni.Tals­maður FBI hefur neitað að tjá sig opin­ber­lega um málið. Sviss­nesk yfir­völd höfðu áður sagt að Blatter væri ekki til rann­sóknar.

Blatter, sem hefur verið forseti FIFA frá árinu 1998, tilkynnti óvænt á blaðamanna­fundi í gær að hann muni hætta sem forseti sambandsins eftir nokkra mánuði. Yfir­lýsingin kom sérstak­lega á óvart þar sem Blatter, sem er 79 ára, var endur­kjörinn í embættið síðastliðinn föstudag. Hann hafði þá staðið af sér gríðar­legan þrýsting frá mörgum af áhrifamestu mönnum knattspyrnu­hreyfingarinnar um að stíga til hliðar.


Verið að undirbyggja mál


Alls hafa fjórtán manns verið hand­teknir og ákærðir vegna meintrar spill­ingar innan FIFA. Þeim er meðal ann­ars gefið að sök að hafa tekið þátt í mút­ur­greiðslum og pen­inga­þvætti. Í banda­rískum fjöl­miðlum í dag er haft eftir heim­ild­ar­mönnum innan FBI, sem fer með rann­sókn máls­ins, að menn­irnir sem þegar hafa verið hand­teknir og ákærðir sýni sam­starfsvilja og upp­lýsi um athafnir ann­arra hátt­settra stjórn­enda og stjórn­ar­manna FIFA, meðal ann­ars Blatter.


Það virð­ist liggja fyrir að rann­sak­endur eru að safna upp­lýs­ingum til að und­ir­byggja mál gegn Blatter. Það setur afsögn hans í gær í nýtt ljós. Þar sagði Blatter m.a.:„Hags­munir FIFA eru mér kærir. Þess vegna hef ég tekið þessa ákvörðun. Það sem skiptir mig mestu máli er stofn­unin FIFA og fót­bolti um allan heim“. Hann til­kynnti sömu­leiðis að hann ætl­aði að boða til nýs aðal­fundar þar sem þarf að kjósa nýjan for­mann, en það verður ekki gert fyrr en á tíma­bil­inu milli des­em­ber á þessu ári og mars á næsta ári.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár