Hoppukastalar og hátíðardagskrá um allt land á 17. júní

Hátíðar­dagskrá er víða um land í dag, á þjóð­hátíðardegi Íslendinga. Íbúar í mörgum sveitar­félögum eru hvattir til að skilja bílana eftir heima en götu­lokanir verða í miðbæ Reykja­víkur.

Stuð
Stuð Sautj­ánda júní er fagnað víða með fánum, gas­blöðru, ýmsum sæt­indum og skrúð­göngum. Mynd: Golli

Fjöl­breytt dagskrá verður í boði víða um land í dag, þjóð­hátíðar­daginn 17. júní. Sveitar­félögin bjóða meðal annars upp á skrúð­göngur, hátíðar­dagskrár, tónleika, barna­skemmtanir, hoppukastala, andlits­málun, kaffi­hlaðborð og ýmsa útiviðburði.

Reykjavík

Í Reykjavík hefst hátíðar­dagurinn með hátíðar­athöfn á Austur­velli klukkan 11 þar sem forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, heldur ávarp.

Þjóðhátíðar­skrúðganga leggur af stað frá Hallgríms­kirkju klukkan 13 og gengur niður Skólavörðu­stíg að Hljóm­skálagarði. Þar verða tónleikar og fjölskyldu­dagskrá frá klukkan 13.30 til 17. Í boði verða meðal annars náttúru­þrautabraut, leiktæki, hoppukastali, sirkuslistafólk, listhópar, Götu­leikhúsið, Húlladúllan, Hringleikur, tröll og matar­vagnar.

Á Klambra­túni hefst dagskrá klukkan 13. Þar verða leiktæki, matar­vagnar, plötu­snúðar og dans­atriði, meðal annars frá Dansi Brynju Péturs.

Götu­lokanir verða í miðborginni meðan hátíðarhöld standa yfir.

ÁvarpHalla Tóm­as­dóttir for­seti flytur ávarp á Aust­ur­velli klukkan 11. Skát­arnir standa heið­ursvörð með íslenska fán­ann á meðan.

Kópavogur

Í Kópavogi verður hátíðar­dagskrá á tveimur stöðum, á Rútstúni og við Versali. Á báðum stöðum verða hátíðar­svæðin opnuð klukkan 12 með hoppuköstulum, leik­tækjum og andlits­málun.

Skrúð­ganga hefst við Mennta­skólann í Kópavogi klukkan 13.30 og henni lýkur á Rútstúni. Þar verður hátíðar­dagskrá frá klukkan 14 til 16. Eva Ruza og Hjálmar Örn kynna og fram koma meðal annars fjallkona Kópavogs, Leik­hópurinn Lotta, Úlfur Úlfur, Bríet, Latibær og VÆB.

Við Versali verður einnig dagskrá frá klukkan 14 til 16. Þar koma fram Latibær, VÆB, Leik­hópurinn Lotta, Aron Can og Bríet. Saga og Snorri kynna.

Velti­bíllinn verður við Sundlaug Kópavogs frá klukkan 12 til 16.

Hafnarfjörður

Í Hafnar­firði verður dagskrá frá morgni til kvölds í miðbænum og víðar. Dagurinn hefst klukkan 8 með fána­hyllingu á Hamrinum. Frá klukkan 10 verður meðal annars boðið upp á sjósund og gufu við Lang­eyrarmalir og opið hús hjá Bretta­félagi Hafnar­fjarðar.

Víkinga­hátíð verður á Víði­staðatúni frá klukkan 11 til 18 og skrúð­ganga leggur af stað frá Flens­borgarskóla klukkan 13.

Þjóðhátíðar­sviðið við Ráðhús­torg hefst klukkan 13.30. Þar koma meðal annars fram Karla­kórinn Þrestir, Fjall­konan, Prinsessurnar þrjár, List­dansskóli Hafnar­fjarðar, Ingó Töfra­maður, Ormstunga, Latibær, Skoppa og Skrítla og DJ BFK.

Fjölskyldu­dagskrá verður einnig á Hörðu­völlum, í Hellis­gerði, í íþrótta­húsinu við Strand­götu og víðar. Börn geta meðal annars farið í leiks­miðju, fengið andlits­málun og farið í hoppukastala.

Klukkan 17 verður brekku­söngur barnanna í Hellis­gerði. Um kvöldið, frá klukkan 19, verður tónlistar­veisla við Ráðhús­torg þar sem fram koma meðal annars Lúðra­sveit verka­lýðsins, Elín Hall, Elvar, gugusar, Kristmundur Axel og Jón Jónsson.

Miðbær Hafnar­fjarðar verður lokaður fyrir bíla­umferð meðan á hátíðar­höldum stendur.

Garðabær

Í Garðabæ verður hátíðar­dagskrá á Garða­torgi. Skrúð­ganga leggur af stað frá Hofs­staðaskóla klukkan 13. Blásara­sveit Tónlistar­skóla Garða­bæjar og Skáta­félagið Vífill leiða gönguna að Garða­torgi.

Frá klukkan 13.30 til 15.45 verður hátíðar­dagskrá þar sem blásara­sveit leikur, fjallkona les ljóð og bæjar­stjóri og forseti bæjar­stjórnar ávarpa gesti. Gunni og Felix kynna dagskrá fyrir yngstu gestina. Fram koma meðal annars Húbba Búbba, Skoppa og Skrítla, Sólon og Dimma dúskur, Leik­félagið Fugla­bjarg og Sigga Ózk.

Frá klukkan 13.30 til 16 verða hoppukastalar, kandífloss, föndurs­miðja, andlits­málun og krakkakaraókí. Kvenfélag Garða­bæjar verður með kaffi­hlaðborð í Sveina­tungu.

Á Álftanesi verður sund opið frá klukkan 10 til 14 og Hönnunar­safn Íslands verður opið frá klukkan 12 til 17. Um kvöldið, klukkan 20, verða ókeypis tónleikar salon­hljóm­sveitarinnar L’amour fou í Tónlistar­skóla Garða­bæjar.

Á tveimur stöðumDimma dúskur og Sólon verða bæði í Kópavogi og Mos­fellsbæ.

Mosfellsbær

Í Mosfellsbæ hefst dagurinn með hátíðar­guðs­þjónustu í Lága­fellskirkju klukkan 11. Skrúð­ganga leggur af stað frá Miðbæjar­torginu klukkan 13.30 og fer að Hlégarði.

Fjölskyldu­dagskrá við Hlégarð hefst klukkan 14. Þar verða meðal annars skóla­hljómsveit og Lúðra­sveit Mosfells­bæjar, hátíðar­ræða bæjar­stjóra, ávarp fjallkonu, Vísinda Villi, Hver vill vera prinsessa?, Leikfélag Mosfells­sveitar með Kardemommubæinn, Ávaxta­karfan, Leik­hópurinn Lotta og Sólon og Dimma dúskur.

Klukkan 16 verður aflrauna­keppni á Hlégarðs­túni þar sem keppt verður um titilinn Sterkasti maður Íslands í flokki undir 90 kílóum.

Frá klukkan 14 til 16 verður kaffi­hlaðborð í Hlégarði. Einnig verða pylsusala, sölutjöld, andlits­málun og hoppukastalar.

Reykjanesbær

Í Reykja­nesbæ fer dagskráin fram í skrúð­garðinum í Keflavík og í ungmenna­garðinum við 88-húsið.

Hátíðar­guðs­þjónusta verður í Kefla­víkurkirkju klukkan 12. Að henni lokinni verður gengið með hátíðar­fánann í skrúð­garðinn undir forystu skáta úr Heiðabúum og Lúðra­sveitar Tónlistar­skóla Reykja­nesbæjar.

Í skrúð­garðinum verður hefð­bundin hátíðar­dagskrá með fána­hyllingu, þjóðsöng, setningar­ræðu, ávarpi fjallkonu og ræðu dagsins.

Að lokinni hátíðar­dagskrá tekur við skemmtidagskrá. Þar koma meðal annars fram Ungleikhúsið, Leikfélag Kefla­víkur, Taekwondodeild Kefla­víkur, Dans­Kompaní, Guðrún Árný, Sirkus Íslands og Guðjón Kristjánsson, sigurvegari Söng­keppni framhalds­skólanna.

Í garðinum verða leikja­stöðvar, hestar, andlits­málning, hoppukastalar og þjóðhátíðar­nammi. Skemmtidagskráin er ókeypis.

Frá klukkan 18 til 20 verður dagskrá fyrir ungmenni við 88-húsið, meðal annars sápubolti, búbblu­bolti, vatnsbað og körfuboltamót. Dans­Kompaní og Ízleifur koma þar fram.

Frítt verður í innan­bæjarstrætó og Duus safnahús verður með ókeypis aðgang í tilefni dagsins.

Akureyri

Hátíð­ar­svæðiðHér má sjá kort af hátíð­ar­svæð­inu á Akureyri.

Á Akureyri leggur skrúð­ganga Skáta­félagsins Klakks og Lúðra­sveitar Akureyrar af stað frá gamla húsmæðra­skólanum við Þórunnar­stræti klukkan 12.30 og fer í Lystigarðinn.

Blómabíll Akureyrar leggur af stað frá Nausta­skóla klukkan 11 og ekur um bæinn með 17. júní lög.

Hátíðar­dagskrá í Lystigarðinum verður frá klukkan 13 til 13.45. Þar verður meðal annars fána­hylling, Lúðra­sveit Akureyrar, bænagjörð og blessun, Kór eldri borgara, fjall­konan og ávarp bæjar­stjóra.

Fjölskyldu­skemmtun verður í Lystigarðinum frá klukkan 13.45 til 16. Þar koma meðal annars fram Vilhjálmur B. Bragason, bæjar­listamaður Akureyrar, Steps Dancecenter, Mahaut Matharel, Karólína Orra­dóttir, Jónsi og Erna Hrönn, DSA List­dansskóli Akureyrar og Hvolpa­sveitin.

Á MA-túni og víðar verður afþreying frá klukkan 13.30 til 17, meðal annars hoppukastalar, andlits­málning, frisbígolf, götu­körfubolti, pokavarp, skotfimi með laser­byssum, skáta­tívolí og matar­vagnar.

Sigling með Húna II verður klukkan 16.30 frá Fiskihöfninni.

Ísafjörður

Á Ísafirði hefst dagurinn með tónlistar­messu í Ísafjarðar­kirkju klukkan 11. Klukkan 12 verður grímu­smiðja Kómedíu­leikhússins í Edinborgar­húsinu.

Skrúð­ganga leggur af stað frá Silfur­torgi upp á Eyrartún klukkan 13.15. Þar verður hátíðar­dagskrá frá klukkan 13.30 til 16 með lúðra­sveit, hátíðar­ræðu, hátíðarkór, ávarpi fjallkonu, hoppuköstulum, andlits­málun, karamellu­regni, hestum og sölu­tjöldum.

Sérstök hátíð verður í Safna­húsinu á Ísafirði, sem fagnar 100 ára afmæli sínu. Opið hús verður frá klukkan 14.30 til 17, þar sem gestum verður boðið upp á afmælis­köku og kaffi. Þar gefst einnig tækifæri til að skoða húsið eftir endur­bætur, þar á meðal barna­deild bóka­safnsins sem opnar þennan dag.

Einnig verður köku­hlaðborð á Logni, sýningar­opnun í Gallerí Úthverfu, pikknikk-tónleikar í Blóma­garðinum og opnunar­hátíð tónlistar­hátíðarinnar Við Djúpið um kvöldið.

FlaggaðBúast má við því að sjá íslenska fána dregna að húni um allt land í dag.

Múlaþing

Í Múlaþingi verður dagskrá á Egils­stöðum, Seyðis­firði, Djúpavogi og Borgar­firði.

Á Egils­stöðum hefst dagurinn með blöðru­sölu við Vilhjálms­völl klukkan 10 og fjöl­skyldustund í Egilsstaða­kirkju klukkan 10.30. Skrúð­ganga fer frá kirkjunni klukkan 11 og henni lýkur við fimleika­húsið með tónlistar­atriði og fimleika­sýningu.

Í Tjarnar­garðinum verður afþreying fyrir börn frá klukkan 11.30, meðal annars hoppukastalar, andlits­málun, krakkazumba og sjoppa. Hátíðar­dagskrá hefst klukkan 14 með hátíðar­ræðu, tónlist, fjallkonu, viðurkenningu Rótarý, atriði úr Minninga­leikhúsinu og verðlauna­afhendingu í skúlptúra­samkeppni barna.

Á Seyðis­firði verður blóm­sveigur lagður að leiði Björns í Firði klukkan 11. Hátíðar­dagskrá verður við Seyðis­fjarðar­kirkju klukkan 13 með hátíðar­messu, ávarpi fjallkonu, tónlistar­atriði, hátíðar­ávarpi og hvatningar­verðlaunum Hugins. Þá verður 17. júní hlaup Hugins fyrir börn 12 ára og yngri klukkan 12.

Á Djúpavogi verður andlits­málun í Gömlu kirkjunni klukkan 13, skrúð­ganga klukkan 14 og hátíðar­dagskrá í Blá klukkan 14.30. Þar verða fána­hylling, fjallkona, skemmtiatriði, kaffi, grill­veisla, hoppukastalar og fjör. Vatns­rennibraut verður í Neista­brekkunni klukkan 15.30 ef veður leyfir.

Á Borgar­firði verður andlits­málun á Heiðinni klukkan 12, skrúð­ganga klukkan 13, leikir og sprell á fótbolta­vellinum klukkan 14 og pylsu- og vöfflu­partí við Fjarðar­borg klukkan 15.30.

Selfoss

Á Selfossi hefst dagurinn með morgun­jóga í Kappahl-höllinni klukkan 9. Fánar verða dregnir að húni við Ráðhús Árborgar klukkan 10 og á sama tíma býður Hestamanna­félagið Sleipnir íbúum á hestbak í Sleipnis­höllinni.

Selfoss­rútan verður í áætlunar­akstri frá klukkan 10 til 16. Við Björgunar­miðstöðina verður tækja­sýning frá klukkan 10.30 til 12 og Bjössi bruna­bangsi verður á staðnum.

Skrúð­ganga leggur af stað frá Selfoss­kirkju klukkan 13.15 og fer í Sigtúns­garð. Þar verða hoppukastalar og loft­boltar opnir klukkan 13.30. Andlits­málun, 17. júní sjoppa og kaffisala verða frá klukkan 13.30 til 16.

Hátíðar­dagskrá hefst í Sigtúns­garði klukkan 13.45 með ávarpi fjallkonu og hátíðar­ræðu. Fjölskyldu­hátíð hefst klukkan 14. Þar koma meðal annars fram Jón Jónsson, Klara Einars, Karíus og Baktus, Eyrnaslapi og Gríslingur og ungt tónlistar­fólk úr Árborg.

Um kvöldið verður boðið upp á siglingu á Ölfusá frá klukkan 19.30 til 21.30. Kvöldvaka eldri borgara verður í Mörkinni frá klukkan 20 til 21.30, með tónlist, gaman­málum, fjallkonu og fjölda­söng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár