Vindmyllurnar munu „gína yfir umhverfi mínu eins og hrammur“

1-8 vind­myllur myndu sjást frá Þing­völlum. 8 frá fossinum Glym og jafnmargar frá hringveginum um Hval­fjörðinn. Enda yrðu þær jafnvel 247 metrar á hæð. Og hátt upp í fjalli.

Steinunn á grunni sumarbústaðarins sem hún er að byggja í Hvalfjarðarsveitinni.
Steinunn á grunni sum­ar­bú­stað­ar­ins sem hún er að byggja í Hval­fjarð­ar­sveit­inni. Mynd: Úr einkasafni

Eftir mikla leit að stað fyrir sumarhús valdi Steinunn Guðmunds­dóttir Hval­fjarðasveit. Ástæðan var einföld: Fegurð, kyrrð, fuglalíf, friðun og óendanlegir mögu­leikar á fallegum göngu­leiðum ekki síst að hæsta fossi landsins, Glym í botni Hval­fjarðar. „Ég fjárfesti í góðri trú í þessari náttúru­perlu og kyrrð fyrir tugi milljóna,“ segir hún. En nú er komið babb í bátinn.

Fyrir­tækið Zephyr Iceland ehf. áformar að reisa allt að 50 MW vind­orkuver að bænum Brekku í Hvalfirði og það mun að mati Stein­unnar spilla þeirri paradís sem hún hafði séð fyrir sér með kaupum á leigulóð í landi Kalastaða í Hval­fjarðar­sveit fyrir réttu ári síðan.

„Ég verð að mótmæla því harðlega að verið sé að verðfella allt mitt með vindorku­garði sem mun gína yfir umhverfi mínu eins og hrammur og gera að engu þá náttúru­perlu og fuglalíf sem er einstakt á þessu svæði,“ skrifar Steinunn í ítarlegri umsögn um mats­skýrslu Zephyr, „með hávaða­mengun, ljós­mengun, sjón­mengun og öllum þeim öðrum ókostum sem þessu fylgir.“

Zephyr vill reisa 8-12 vind­myllur á fjallinu Brekku­kambi sem er í um 647 metra hæð yfir sjávar­máli. Hver mylla gæti verið um 247 metrar á hæð en ekki hefur verið ákveðið af hvaða tegund þær yrðu. Til saman­burðar er Hallgríms­kirkjuturn 74,5 m og Eiffel-turninn í París um 300, 324 ef spíran er tekin með.

Náttúru­fræði­stofnun Íslands skilgreinir Hvalfjörð sem mikilvægt fugla­svæði og er fjörðurinn einnig á B-hluta náttúru­minjaskrár sem og fossinn Glymur sem er í um 10 kílómetra fjarlægð frá virkjana­svæðinu. En „frum­athuganir á svæðinu benda til þess að vind­aðstæður á fyrir­huguðu framkvæmda­svæði séu góðar fyrir vind­orkunýtingu,“ segir í mats­áætlun Zephyr. „Stað­setning fyrir­hugaðs vindorku­garðs á Brekku­kambi þykir góð vegna nálægðar við helstu raforku­notendur landsins (höfuð­borgar­svæðið), háspennu­línurnar Sultar­tangalínu 3 og Brenni­melslínu 1, tengi­virki og höfn við Grundar­tanga.”

Steinunn segir ljóst að með 247 metra háum vind­myllum með blikkandi ljósum til varnar flug­umferð sé „hin dimma íslenska náttúru­fegurð með norður­ljósum og tilheyrandi horfin úr nátt­úrunni á stóru svæði“.

Mikil uppbygging hefur verið í ferða­þjónustu í Hval­fjarðar­sveit og fer sumar­húsabyggð þar ört stækkandi. „Svæðið umhverfis framkvæmda­svæðið einkennist af land­búnaði, sumar­húsabyggð og útivistar­möguleikum,“ segir í skýrslu Zephyr. Sumar­húsabyggðir eru m.a. í Svínadal við Eyrarvatn og Glamma­staðavatn og við Bjarteyjar­sand og Brekku við suðurhlíð Brekku­kambs.

Næstu mannvirki við framkvæmda­svæðið eru suðvestan þess, í sumar­húsabyggð við Forna­stekk. Ysti sumar­bústaðurinn er í um 2,01-2,18 km fjarlægð frá ystu vind­myllunum.

Steinunn bendir á að fjöldi þekktra staða og göngu­leiða séu á þessum slóðum, staðir sem ferðamenn og útivistar­fólk sæki sífellt meira í. „Lega vind­myllanna er slík að það er ekki bara Hval­fjörður og nærumhverfi sem verða fyrir sjón­mengun heldur er sjálfur þjóð­garður okkar, Þing­vellir, í valnum því reiknað er með að þaðan gætu sést átta vind­myllur af þeim fimmtán sem fyrir­hugað er að reisa og sjást allt að átta vind­myllur frá þjóð­veginum á hinum ýmsu stöðum, sem sagt alls staðar frá.“

Hún gagnrýnir fjölmargt í skýrslu Zephyr sem unnin er af verkfræði­stofunni Eflu. Hún spyr t.d. hvernig eigi að vernda fugla á þessu mikilvæga búsvæði þeirra og standa við þá alþjóð­legu samninga sem Ísland hefur undir­ritað. Þá gerir hún athuga­semdir við áformaðar rann­sóknir á hljóð­mengun og spyr í hverju mótvægis­aðgerðir vegna röskunar á viðkvæmum svæðum eigi að felast.

Bæir sem ekki eru til?

„Mér þykir rýra verulega gildi skýrslunnar þegar ekki er einu sinni hægt að fara rétt með bæjarnöfn en það er talað um Katastaði og Kata­staðakot í skýrslu Eflu sem eru ekki á þessu svæði,“ bendir Steinunn svo á. „Hins vegar eru bæirnir Kala­staðir og Kala­staðakot í Hval­fjarðar­sveit. Ykkur til fróðleiks þá er Kata­staðakot ekki til mér vitanlega og Kata­staðir eru á Norð­austurlandi en það er kannski verið að áforma vindorku­garð þar líka?“

Allir geta kynnt sér mats­áætlun Zephyr um vind­orkuver í Hvalfirði hér. Frestur til að skila umsögnum, sem verða að vera skriflegar, er til og með 20. júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár