Blóðugur slagur kvikmyndarisanna um James Bond framundan

Nýjasta kvik­myndin um ævintýri James Bond, Spectre, verður frumsýnd á heimsvísu í nóvember­mánuði næst­komandi. Bíómyndin verður sú 24. í röðinni, sem er í sjálfu sér ekki í frásögu færandi, nema fyrir þær sakir að á sama tíma og hún verður frumsýnd fellur úr gildi samningur Sony Pictures við Metro Goldwyn Mayer frá árinu 2006 um dreifingu kvik­myndanna um helsta njósnara hennar hátignar.

Sony Pictures leggur allt kapp á að ná nýjum samningi við MGM um dreifingu James Bond myndanna, og þá sérstak­lega eftir erfitt tímabil frá því í nóvember­mánuði síðastliðnum eða síðan tölvu­þrjótar brutust inn í tölvu­kerfi kvikmynda­fyrir­tækisins í tengslum við fyrir­hugaða frum­sýningu á kvik­myndinni The Interview. Eins og flestir eflaust vita er gert stólpa­grín að Kin Jung-Un, leiðtoga Norður-Kóreu, í kvik­myndinni, en talið er að tölvu­árásin á Sony hafi verið fyrir tilstuðlan yfirvalda í Norður-Kóreu.

„Auðvitað munum við bjóða í dreifinga­réttinn, en það munu líka allir aðrir gera,“ segir Tom Rothman, stjórnar­formaður Sony Pictures, í samtali við frétta­miðilinn Variety. „Staðreyndin er sú að Sony hefur gengið sérlega vel að vinna með Bond.“

Gengið vel síðustu ár eftir mögur ár á undan


Stjórn­ar­for­maður Sony hefur nokkuð til síns máls. Eftir heldur mag­urt tíma­bil árin 1995 til 2002, eða á meðan hinn til­þrifa­litli Pierce Brosnan gegndi hlut­verki Bond, hefur vöru­merkið aftur risið til hæstu hæða, eða allt frá því að Sony tók við. Síðasta James Bond myndin, sem skart­aði Pierce Brosnan í aðal­hlut­verk­inu, Die Another Day, þén­aði til að mynda 431 milljón banda­ríkja­dali árið 2002. Casino Royale, sem frum­sýnd var árið 2006, með Daniel Craig í broddi fylk­ingar, skilað um 600 millj­ónum banda­ríkja­dölum í kass­ann. Quantum of Solace, sem var frum­sýnd árið 2008, þén­aði litlu minna eða hátt í 590 millj­ónum dala.

Fyrir utan það að síðustu bíómyndirnar um breska njósn­arann hafa verið mun betri en fyrirrennarar þeirra, að minnsta kosti síðastliðin ár, hefur Sony þótt takast einstak­lega vel upp við markaðs­setningu á þeim.

Aðdáendur kvik­myndanna um James Bond bíða spenntir eftir að berja nýjustu myndina um njósn­arann augum.

Aðdáendur kvikmyndanna um James Bond bíða spenntir eftir að berja nýjustu myndina um njósnarann augum.
Aðdá­endur kvik­mynd­anna um James Bond bíða spenntir eftir að berja nýj­ustu mynd­ina um njósn­ar­ann augum.

Síðasta bíómyndin um breska njósn­arann 007 er hins vegar aðsóknar­mesta Bond kvikmynd sögunnar. Skyfall skilaði hvorki meira né minna en 1,1 milljarði bandaríkja­dala á heimsvísu í kassann. Reiknað er með að nýjasta myndin um James Bond, Spectre, sem er sömuleiðis í leik­stjórn Sam Mendes, muni sömuleiðis raka inn seðlunum en spár gera ráð fyrir að myndin muni líka brjóta eins milljarða múrinn.

Talið líklegast að Warner Bros. hreppi hnossið


Hvort Sony Pictures ná að tryggja sér áfram­hald­andi sam­starf við Bond skal ósagt látið. Í Hollywood er hins vegar slúðrað um að Warner Bros. kvik­mynda­fyr­ir­tækið sé lík­leg­ast til að hreppa hnossið. Þar er talin spila inn í vin­átta Gary Barber, for­stjóra MGM, og Kevin Tsu­ji­hara, stjórn­ar­for­manns Warner Bros. Þá hafa kvik­mynda­verin unnið sam­eig­in­lega að stórum verk­efnum und­an­farið, og nægir þar að nefna þrí­leik­inn um Hobbit­ann, sem rak­aði inn þremur millj­örðum banda­ríkja­dala á heims­vísu.

Missi Sony Pictures dreifinga­réttinn gæti kvikmynda­fyrirtækið verið í vandræðum. Síðasta kvik­myndin um Spider-Man stóðst engan veginn væntingar fyrir­tækisins um miðasölu og fékk slæma útreið hjá kvikmynda­gagn­rýnendum. Vöru­merkið um Lóa er því í vandræðum, en Sony hefur líka alltaf getað stólað sig á væna fúlgu í tengslum við James Bond. Það gæti hins vegar breyst í nóvember, það er að segja ef Bond fer annað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár