Ráðuneytið segir Róbert Downey ekki hafa fengið sérmeðferð

Dóms­mála­ráðu­neytið segir að 44 pró­sent þeirra sem hafa fengið upp­reista æru hafi fengið hana innan fimm ára frá afplánun refs­inga. Mál Róberts Downey sé því ekki eins­dæmi.

Sigríður Andersen er dómsmálaráðherra.
Sigríður Andersen er dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Dóms­mála­ráðu­neytið segir að af þeim 32 ein­stak­lingum sem hafi fengið upp­reist æru frá árinu 1995 hafi 14 fengið hana innan fimm ára frá því að afplánun þeirra á fang­els­is­dómum lauk. Hinir sóttu um upp­reist æru eftir að fimm ár höfðu liðið frá afplánun refs­inga. „Engum var hafnað á grund­velli þess að við­kom­andi upp­fyllti ekki skil­yrði um fimm árin,“ segir í frétt ráðu­neyt­is­ins.

Ástæða þess að fréttin er birt er sú að í fjöl­miðlaum­fjöllun í kjöl­far nýupp­kveð­ins úrskurðar úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál hefur verið fjallað um að Róbert Downey, dæmdur kyn­ferð­is­brota­maður sem fékk upp­reist æru á síð­asta ár, hafi fengið und­an­þágu frá almennri reglu um veit­ingu upp­reist æru. Sú und­an­þága hafi falist í því að umsókn hans hafi verið tekin til með­ferðar hjá dóms­mála­ráðu­neyt­inu þrátt fyrir að ekki væru liðin fimm ár frá því að hann lauk afplánun. Róbert Downey hlaut þriggja ára fang­els­is­dóm árið 2008 fyrir kyn­ferð­is­brot gegn fjórum barn­ungum stúlkum. Hann hóf afplánun í febr­úar 2009.

Í frétt ráðu­neyt­is­ins segir að sam­kvæmt ára­langri stjórns­sýslu­venju „hefur upp­reist æru verið veitt með vísan til 3. mgr. 85. gr. almennra hegn­ing­ar­laga sem heim­ilar þegar sér­stak­lega stendur á að veita upp­reist æru þegar 2 ár eru liðin frá afplánun refs­ingar. Í máli því sem úrskurður nefnd­ar­innar tók til var ekki um að ræða sér­með­ferð á máli við­kom­andi umsækj­enda. Þvert á móti fékk mál hans sömu með­ferð og önnur mál sam­bæri­leg mál und­an­farna ára­tugi.

Frá árunum 1995-2017 fengu 32 upp­reist æru. Af þeim eru 14 sem fengu upp­reist æru innan fimm ára eða 44 pró­sent Hinir, þ.e. 18 ein­stak­lingar, sóttu um upp­reist æru eftir að fimm ár höfðu liðið frá afplánun refs­inga. Engum var hafnað á grund­velli þess að við­kom­andi upp­fyllti ekki skil­yrði um fimm árin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár