Meloni og Merz: Nýtt ofurpar Evrópusambandsins

Giorgia Meloni, forsætis­ráðherra Ítalíu, og Friedrich Merz, kanslari Þýska­lands, virðast komin lang­leiðina með að mynda nýja kjölfestu í Evrópu­sambandinu. Pólitískur óstöðug­leiki í Frakk­landi og andstaðan gegn Mercosur-samningnum hefur ýtt Emmanuel Macron út í horn.

Vinir
Vinir Giorgia Meloni, for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, og Friedrich Merz, kansl­ari Þýska­lands, virð­ast vera orðnir nán­ari sam­starfs­fé­lagar en Merz og Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands. Hér eru þau öll þrjú á þing­fundi leið­toga­fundar G20-ríkj­anna í Nasrec Expo Centre í Jóhann­es­ar­borg í nóv­em­ber 2025. Mynd: Leon Neal / AFP

Í málum allt frá viðskipta­samningum til bíla­iðnaðarins hafa Giorgia Meloni, forsætis­ráðherra Ítalíu, og Friedrich Merz, kanslari Þýska­lands, í auknum mæli sameinað krafta sína til að stýra stefnu­málum Evrópu­sambandsins – og hafa um leið tekið þá áhættu að ýta Emmanuel Macron Frakk­lands­forseta til hliðar.

Á leiðtoga­fundi ESB í dag munu Meloni, sem er lengst til hægri, og Merz, sem er íhalds­samur, leggja áherslu á sameiginlega sýn á að efla samkeppnis­hæfni ESB. Þetta er nýjasta merkið um vaxandi samstarf ítalskra og þýskra stjórn­valda, sem setur spurninga­merki við stöðu hins hefð­bundna bandalags Frakk­lands og Þýska­lands.

„Sumir álits­gjafar segja að 2026 verði ár Ítalíu og Þýska­lands,“ sagði Meloni í síðasta mánuði á leiðtoga­fundi með Merz í Róm. „Við ætlum að leggja allt í sölurnar ... til að treysta vináttu sem er stefnu­markandi ekki aðeins fyrir þjóðir okkar, heldur fyrir Evrópu í heild.“

Leið­togarnir tveir hafa lengi deilt harðri afstöðu til fólks­flutninga, …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár