Verðmiðinn á Uber hækkar sífellt - Nú metið á átta þúsund milljarða

Bílstjórar sem keyra undir merkjum Uber eru nú um 160 þúsund talsins í 290 borgum.

Leigubíla­þjónustan Uber er nú metið á 62 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur ríflega átt þúsund milljörðum króna. Fyrir­tækið er að ljúka nýrri fjár­mögnun, upp á 2,1 milljarð Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 270 milljarða króna, samkvæmt fréttum Bloomberg í dag.

Uber hefur vaxið ógnarhratt frá því það var stofnað, í mars 2009, og stefnir nú að því að þróa þjónustuna áfram og þá deili­hugsun sem býr að baki þjónustunni. Einkum eru það pakka- og matar­sendingar í borgum sem Uber einblínir nú á, og mun það fjármagn sem fyrir­tækið er nú að sækja sér, fara í vöruþróun á þessum sviðum, auk þess sem styrkja á vöxt fyrir­tækisins á hinu ýmsu mörkuðum á erlendum vettvangi.

Meira en átta milljónir manna nota Uber reglulega á heimsvísu, og eru ökumenn undir merkjum Uber rúmlega 160 þúsund.

Þjónustan er í boði í 290 borgum, og er meðal­fjöldi ferða á dag um ein milljón, samkvæmt upplýsingum sem DMR tók saman.

Ryan Graves, yfirmaður alþjóða­sviðs Uber, kom hingað til lands í ágúst, og lofaði því þá, í viðtali við mbl.is, að Uber yrði valkostur fyrir Íslendinga innan skamms.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár