Myndband: Utanríkisráðherrar NATO-ríkjanna syngja "We Are the World"

Gunnar Bragi Sveinsson utan­ríkis­ráðherra sótti utan­ríkis­ráðherra­fund Atlantshafs­banda­lagsins sem lauk í Antalya Tyrklandi í dag. Á meðal þess sem fjallað var um á fundinum voru málefni Úkraínu, Afganistan og breytt öryggis­umhverfi í Evrópu.

Þar tilkynnti utan­ríkis­ráðherrann um þátttöku Íslands í stuðnings­sjóði við starfs­menntun her- og lögreglu­kvenna í Jórdaníu í samræmi við áherslur Íslands á að efla þátttöku kvenna í öryggis- og friðar­málum.

Fundað var um breytingar á öryggis­umhverfi Evrópu vegna hernaðar­umsvifa Rússa og uppgangs öfgamanna í Miðausturlöndum og Norður-Afríku. Á fundinum kom auk þess fram að vel gangi að þróa viðbúnaðar­áætlun banda­lagsins sem ætlað er að efla sameiginlegar varnir og viðbragðs­getu Atlantshafs­banda­lagsins og er gert ráð fyrir að þeirri vinnu verði að mestu lokið á næsta ári.

Það voru hins vegar ekki hin alvöru­gefnu þungamál sem utan­ríkis­ráðherrarnir ræddu sem vöktu mesta athygli á fundinum heldur gjörn­ingur sem þeir stóðu fyrir á skemmtun að fundinum loknu. Þar stigu þeir upp á svið, á samt Jens Stoltenberg, framkvæmda­stjóra NATO, og sungu saman þróunar­landa­hjálpar-slagarann "We Are the World" eftir Michael Jackson og Lionel Ritchie sem var uppruna­lega gefið út árið 1985. Gunnar Bragi lét ekki sitt eftir liggja og tók þátt í uppá­tækinu, þótt hann hafi ekki fengið hljóð­nemann til að láta söngljós sitt skína. Gunnar Bragi birtist eftir 55 sekúndur lengst til hægri á skjánum.

https://www.youtube.com/watch?v=2_wfMrz9_mY

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár