Vill reisa nýjan stórglæsilegan tennisvöll í Dubai...neðansjávar

Dubai hefur verið vettvangur stórra verkefna hjá arkitektum undanfari ár, svo ekki sé nú fastar að orðið kveðið. Ævintýralegar byggingar hafa risið í eyðimerkur­borginni á undan­förnum árum, og sér ekki fyrir endann á fjöl­breytilegum uppbyggingar­verkefnum.

Pólski arkitektinn Krysztof Kotala, sem er meðal eigenda hönnunar hússins 8+8 Concept Studio, hefur hannað metnaðar­fullt verkefni sem hann vonast til þess að verði byggt úti fyrir strönd Dubai. Það er neðansjávar tennis­völlur, þar sem áhorf­endur geta fylgst með tennis og síðan lífinu í sjónum, útum þykkt gler umlykur völlinn.

Tennis­húsið er teiknað með átta völlum, þar af einum aðalvelli. Þessi mynd sýnir hvernig útsýnið gæti verið, við aðstæður eins og þær eru við hefð­bundna keppni. Mynd: 8+8 Concept Studio.

Tennishúsið er teiknað með átta völlum, þar af einum aðalvelli. Mynd: 8+8 Concept Studio.
Tenn­is­húsið er teiknað með átta völlum, þar af einum aðal­velli. Mynd: 8+8 Concept Studio.

Í viðtali við Quartz, segir Kotala að Dubai sé full­kominn staður fyrir þessa byggingu, þar sem rík hefð sé fyrir tennis og mikilvægt fyrir borgina að marka sér sérstöðu í þessari virtu íþrótta­grein.

Kotala hefur þegar birt myndir af vellinum á Facebook síðu hönnunar­hússins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár