Tæknifyrirtækin allsráðandi á First North-markaðnum

Fjölmörg fyrirtæki sem eru í örum vexti einblína á tækni­þróun með einhverjum hætti fóru í frumútboð á hlutabréfa­markað í fyrra á Norður­löndum. Baldur Thorlacius hjá Nasdaq Iceland fer yfir stöðuna í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri sölu- og viðskiptatengsla hjá Nasdaq Iceland.
Baldur Thorlacius, fram­kvæmda­stjóri sölu- og við­skipta­tengsla hjá Nasdaq Iceland. Mynd: Nasdaq Iceland

Tækni­þróun er það ofurafl sem flest vaxtar­fyrirtæki sem skráðu sig á First North- hlutabréfa­markaðinn í fyrra gera út á, en auk þess eru fyrirtæki í líftækni, heilbrigðis­vísindum og umhverfis­málum áberandi. Þetta segir Baldur Thorlacius, framkvæmda­stjóri sölu- og viðskipta­tengsla hjá Nasdaq Iceland, í nýjasta tölublaði Vísbendingar, sem kom út á föstu­daginn.

Ár útboða

Í greininni fer Baldur yfir frumútboð fyrir­tækja sem skráðu sig á First North vaxtar­markaðinn í kaup­höllum Norður­landanna í fyrra. Samkvæmt honum voru þau alls 136, en til viðbótar skráði 31 þeirra sig á markað án útboða. Hann segir að metár hafi verið í frum­útboðum á Norður­löndum og í Banda­ríkjunum, þar sem áhugi fjárfesta var mikill og aðstæður til útboða þóttu almennt góðar.

Baldur flokkar fyrir­tækin sem fóru í frumútboð eftir svokölluðum ofuröflum (e. mega­trends), en það eru straumar og stefnur sem móta og gjörbylta samfélaginu okkar. Ofuröflin sem hann tilgreinir eru fimm talsins: Færsla á efnahags­legu valdi, þéttbýlis­myndun, loftslags­breytingar, breytingar í lýðfræði og tækni­þróun.

Langflest fyrir­tækjanna, eða 81 prósent þeirra, gerðu út á tækni­þróun með einum eða öðrum hætti. Í öðru sæti er svo lýðfræði og samfélagslegar breytingar, en 22 prósent fyrri­tækjanna virðast leggja áherslu á þann lið. Í þessum flokki eru fyrirtæki sem startfa á sviði heilsu­tækni, auk annarra sem sinna þjónustu við aldraða.

Í þriðja sætið eru umhverfismál, en sá mála­flokkur er hluti af kjarna­starfsemi fimmtungs fyrir­tækjanna sem fóru í frumútboð í fyrra. Minna er um fyrirtæki sem gera út á þéttingu byggðar og færslu á efnhagslegu valdi, en samanlagt leggja um átta prósent fyrir­tækjanna áherslu á þá liði.

„Þegar ég horfi til framtíðar í gegnum óvísindalegu norrænu frumútboðs­gleraugun mín sé ég að tæknin er alls­ráðandi,“ segir Baldur í greininni sinni. „Þetta kemur auðvitað ekki á óvart. Fyrirtæki í líftækni og öðrum heilbrigðis­vísindum eru orðin meira áberandi í hópi stærstu og öflugustu fyrir­tækja Norður­landanna og umhverfis­málin eru orðin risa­vaxinn iðnaður.“

Hann bætir við að tíminn muni leiða í ljós hvort þessar áherslur markaðarins hafi verið réttar, en mögulega séu þarna einhver tækifæri sem markaðurinn sé að missa af. Slíkt verði hins vegar einungis útkljáð á meðal frumkvöðla og fjárfesta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár