FréttirÁlver

Kjara­deilan í Straums­vík: Eigandi álvers­ins hreykir sér af því að ódýrt sé að fram­leiða ál

Kostn­að­ar­lækkun hjá Rio Tinto eitt af aðal­at­rið­unum á fjár­festa­kynn­ingu sem haldin var í London í gær. Lækkun á kostn­aði í álf­ram­leiðslu­hluta Rio Tinto nemur 1,1 millj­arði Banda­ríkja­dala á árunum 2013 til 2015. Deutsche Bank mælir með kaupum á hluta­bréfum í fyr­ir­tæk­inu. Á sama tíma kvartar Rio Tinto á Íslandi undan vænt­an­legum tap­rekstri og seg­ist þurfa að skera niður auk þess sem það sé rétt­læt­is­mál að fyr­ir­tækið sitji við sama borð og önnur þegar kemur að mögu­leik­anum á því að bjóða verk út í verk­töku.
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Ráðu­neyti Kristján Þórs tekur ein­hliða ákvörðun um einka­væð­ingu

Heilsu­gæsla höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins seg­ist ein­göngu hafa verið ráð­gef­andi þegar heil­brigð­is­ráðu­neyti Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar ákvað að opna þrjár nýjar einka­reknar heilsu­gæslu­stöðvar. Fram­kvæmda­stjóri lækn­inga heilsu­gæsl­unnar hefur lengi talað fyrir auk­inni fjöl­breytni á rekstr­ar­formum heil­brigð­is­þjón­ustu og stofn­aði sjálfur fyr­ir­tæki sem ætl­aði að sinna ferða­tengdri lækn­inga­þjón­ustu fyrir erlenda aðila. Nýju stöðv­arnar eru ekki fjár­magn­aðar og munu 20 heilsu­gæslu­stöðvar - 15 rík­is­reknar og 5 einka­reknar - því þurfa að bít­ast um sama fjár­magnið.
FréttirÁlver

Kjara­deilan í álver­inu í Straums­vík: Rio Tinto vill lækka kostnað um 43 millj­ónir

Samn­inga­maður Rio Tinto sem kom frá Frakk­landi á þriðju­dag gaf upp að fyr­ir­tækið vilji skera niður um 43 millj­ónir króna. Þess vegna er kjara­deila Rio Tinto og starfs­manna í hnút. Nið­ur­skurð­ur­inn nemur 0,06 pró­sentum af tekjum álvers­ins í Straums­vík. Eitthvað annað vakir fyrir Rio Tinto en bara þessi launa­nið­ur­skurður.

Mest lesið undanfarið ár