Komið að skuldadögum fyrir Trump?

Öll spjót standa á Donald Trump Banda­ríkja­for­seta nú þegar þingið hefur hafið rann­sókn á hvort hann hafi gerst brot­legur í starfi. Ljóst er að meiri­hluti er fyrir því í full­trúa­deild þings­ins að ákæra for­set­ann, enda virð­ist borð­leggj­andi mál að hann mis­not­aði emb­ætti sitt til að þrýsta á stjórn­völd í Úkraínu að rann­saka Joe Biden, sinn helsta stjórn­mála­and­stæð­ing. Um leið sætir Rudy Guiliani, einka­lög­fræð­ingur Trumps, sjálfur saka­mála­rann­sókn og tveir dul­ar­fullir aðstoð­ar­menn hans hafa verið hand­teknir fyrir að bera erlent fé á for­set­ann.

Komið að skuldadögum fyrir Trump?
Trump og arf­tak­inn? Ef Donald Trump verður lát­inn víkja verður Mike Pence for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: History in HD

Það hefur verið til­finn­inga­legur rús­sí­bani fyrir bæði blaða­menn og leik­menn að fylgj­ast með gangi mála í banda­rískum stjórn­málum und­an­farið. Hjólin byrj­uðu að snú­ast seint í síð­asta mán­uði þegar fjöl­miðlar greindu frá því að banda­ríska þingið hefði fengið í hendur skýrslu frá upp­ljóstr­ara innan leyni­þjón­ust­unnar. Trump-stjórnin mun hafa reynt að koma í veg fyrir að skýrslan bær­ist við­eig­andi þing­nefnd, sem er alvar­legt út af fyrir sig ef rétt reyn­ist.

Fljót­lega kom í ljós að ábend­ing upp­ljóstr­ar­ans sneri aðal­lega að sím­tali sem Trump átti við Volody­myr Zelensky, for­seta Úkraínu, í júlí síð­ast­liðnum. Sagðist upp­ljóstr­ar­inn hafa rætt við fólk með vit­neskju um efni sím­tals­ins. Það væri sér áhyggju­efni að Trump hefði þar farið langt yfir strikið með því að blanda saman emb­ætt­is­verkum sínum sem for­seta við eigin póli­tíska bar­áttu fyrir kom­andi for­seta­kosn­ingar vest­an­hafs árið 2020.

Nokkrir ráð­gjafa Trumps innan Hvíta húss­ins höfðu hlustað á sím­talið í beinni en hand­rit þess var ekki gert aðgengi­legt öðrum starfs­mönnum eins og almennt er venjan þegar ekki er um að ræða sam­töl um við­kvæm þjóðar­ör­ygg­is­mál. Þess í stað var hand­ritið vistað í tölvu­kerfi sem er ein­göngu ætlað fyrir allra mestu rík­is­leynd­ar­mál Banda­ríkj­anna.

Greiðinn við Trump

Í fyrstu virt­ist Trump standa á sama um þessar ásak­anir og sagði ítrekað við fjöl­miðla að sím­tal sitt við Zelensky hefði verið „full­komið“ að öllu leyti og ekk­ert við það að athuga. Máli sínu til stuðn­ings gaf hann fjöl­miðlum aðgang að hluta af umræddu hand­riti en það reynd­ist síður en svo til þess fallið að lægja öld­urnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár