Sigraðist á stjórnlausum ótta við dauðann

Ester Ósk Stein­ars­dóttir hefur glímt við heilsu­kvíða frá því hún var barn og ótt­að­ist að vakna aldrei aftur ef hún færi að sofa. Eftir alla and­legu bar­átt­una varð hún fyrir áfalli þegar hún reyndi að eign­ast barn.

Sigraðist á stjórnlausum ótta við dauðann
Ester Ósk Eftir að hafa barist við heilsu­kvíða frá barns­aldri end­aði hún í þraut­ar­göngu við að reyna að eign­ast barn. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ester Ósk Stein­ars­dóttir var um 10 ára gömul þegar hún las grein um stelpu á aldur við sig sem fór í sum­ar­bú­stað með ömmu sinni og afa og veikt­ist þar og dó í kjöl­farið úr heila­himnu­bólgu.

„Ég ein­hvern veg­inn greip þetta,“ segir Ester og lýsir því hvernig líf hennar breytt­ist. „Eftir að ég las þessa grein ímynd­aði ég mér að það væri ýmis­legt að mér; ég varð stundum stíf í öxlum og þoldi ekki sól­ar­ljós. Ég fór ekki út í heilt sumar því ég var í raun og veru bara veik. Það var farið með mig á milli lækna en aldrei fannst neitt að. Þetta var algjör­lega haus­inn sem bjó til öll ein­kenni,“ segir hún.

Ester átti erfitt með svefn, vegna þess að hún trúði því að hún myndi deyja í svefni.

„Þegar ég var 14 ára þurfti mamma að svæfa mig á hverju kvöldi af því …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár