Langt frá markmiðum um sjáfbærni

Langt í að mark­mið fyrir næsta ár um end­ur­vinnslu heim­il­is­úr­gangs náist. Til þess þurfa skil að tvö­fald­ast. Ísland er eina landið þar sem enn er heim­ilt að urða líf­rænan úrgang.

Langt frá markmiðum um sjáfbærni
Vantar uppá Hlutfall end­ur­vinnslu á heim­il­is­úr­gangi á Norð­ur­lönd­unum. Mynd: Shutterstock

Ísland rekur lest­ina af Norð­ur­lönd­unum þegar kemur að hlut­falli þess heim­il­is­úr­gangs sem skilað er til end­ur­vinnslu. Þó hefur hlut­fallið auk­ist frá árinu 2008, þegar innan við 20 pró­sent heim­il­is­úr­gangs kom til end­ur­vinnslu. Árið 2016 skil­aði um 33 pró­sent heim­il­is­úr­gangs sér til end­ur­vinnslu. Hins vegar féll hlut­fallið skarpt árið 2017 og þá skil­aði sér ekki nema um 26 pró­sent heim­il­is­úr­gangs til end­ur­vinnslu. Ekki varð þá mark­verð breyt­ing á magni heim­il­is­úr­gangs milli þess­ara ára, þrátt fyrir fjölgun íbúa. Skýr­ingar á þeirri breyt­ingu liggja ekki fyrir.

Mjög langt er því í land með að ná þeim mark­miðum sem sett hafa verið um sjáf­bærni í íslensku þjóð­fé­lagi í stefnu­mörkun til árs­ins 2020 og einnig í lands­á­ætlun um með­höndlun úrgangs á árunum 2013–2020.

Langt í land

Í til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins númer 98 frá 2008 er sett sú krafa að árið 2020 verði helm­ingur alls plasts, glers, papp­írs/pappa og málma sem safnað er frá heim­ilum und­ir­búið fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár