Stuð í Feneyjum

Til­vilj­anir leiddu Hallgrím Helgason með fjöl­skyld­una á Fen­eyjat­ví­ær­ing­inn, þar sem honum mætti mynd­list sem var svo klikkuð og mögnuð að hann nán­ast lypp­að­ist niður. Þegar út var komið var hann svo sleg­inn í mag­ann og utan undir í einu vet­fangi, minntur á stærstu ham­farir síð­ustu ára.

Stuð í Feneyjum

Til­vilj­anir teymdu okkur á Tví­ær­ing­inn í Feneyjum þetta árið og var lítil dóttir með í för. Agla fann að vanda frá­bært hótel fyrir okkur, í eins metra breiðri götu aftan við Gucci-búð­ina, með leyni­garði og barn­góðum þjónum. Hérna lærðum við fljótt þá list heima­manna að panta ann­að­hvort prosecco (jafn dýrt og vatn) eða aperol spritz (aðeins dýar­ara en vatn) á slag­inu klukkan sex. Fáir hafa lært að nýta rýmið jafn vel og Feney­ingar (þrengsl­anna vegna) og bara það að sitja í horni hót­el­bars­ins og virða fyrir sér umhverfið getur gefið manni vissan mynd­listarunað, ekki síst að glasi loknu. Og þegar við tylltum okkur svo á sík­is­brún til að snæða heima­rétt­inn Nero di seppia (blek­pasta) á meðan gondóla­stjór­inn dólaði sér hjá með roskið brúð­kaups­af­mælispar frá Cleveland um borð (svo nærri að hann rak næstum oln­bog­ann í okkur) og ljúfur klóaks­ilmur fyllti loftið, þá náði maður FF-móment­inu (full­næg­ingu ferða­manns­ins).

En við vorum ekki bara komin til að njóta Feneyja, heldur bíennals­ins líka, og klukkan ell­efu fyrsta dag­inn vorum við mætt í Arsenale-skál­ann. Ég hafði aðeins einu sinni áður komið á þessa heims­sýn­ingu mynd­list­ar­innar. Það var árið 1995, þegar Birgir Andr­és­son heit­inn var full­trúi okkar, og ég í fylgd elstu dótt­ur­innar, Hall­gerðar, sem þá var ell­efu ára. Að auki er maður hálf­dott­inn út úr mynd­list­ar­heim­inum og til­hlökk­unin var því tvö­föld, að sjá hvað væri þar að ger­ast og fá að auki nokkra daga í móður allra borga.

Í stuttu máli var þetta mikið kikk og tripp. Í gamla daga voru svona sýn­ingar und­ir­lagðar af sömu gömlu nöfn­unum ár eftir ár, sömu and­lausu formal­ísku leið­indin aftur og aftur: Daniel Buren, Donald Judd, Carl Andre, Sol Lewitt og Jannis Kounnellis og hvað þeir hétu nú allir þessir hvítu karl­kyns mínima­listar sem kvöldu mann of lengi. Þess vegna var svo gaman að sjá að nú er öldin önnur, ný og fersk. Sýn­ing­ar­stjór­inn Ralph Rugoff (sem hefur stjórnað Hayward-gall­er­í­inu í London frá 2006) hafði greini­lega lagt sig fram um að gæta fjöl­breytni: Í fyrsta sinn voru jafn margar konur og karlar að sýna og þá gat að líta mynd­list­ar­menn úr nýjum áttum: frá Suður-Afríku, Kenía, Nígeríu, Mexíkó, Indlandi, Kína … Hér áður fyrr voru allir sýnendur úr Vest­ur­heimi.

Við Arsenale-skál­ann

Ég er að tala um sjálfa meg­in­sýn­ing­una sem Rugoff setti saman, „May You Live in Inter­est­ing Times“, en ekki þjóð­ar­skálana, hún var óneit­an­lega meira spenn­andi en júró­visjón-keppnin sú. Á hverjum tví­ær­ingi fær nýr ein­valdur að ráða og velja inn á aðal­sýn­ing­una og Rugoff virð­ist svona líka ágætur; hann hóf verkið á því að fara yfir þá lista­menn sem sýndir voru á þremur síð­ustu bíennölum og úti­lok­aði þá frá þessum. Vel gert! Að auki  sleppti hann alveg að vera með eitt­hvert þjak­andi alls­herjar þema (þema-árátta nútím­ans er orðin svo þreytt …) sem sam­eina skyldi öll verkin undir ein­hverri gervi­fræði­legri regn­hlíf. Og til að sýna það í verki fékk sýn­ingin almennan titil: „May You Live in Inter­est­ing Times“. Þetta heiti er reyndar það léleg­asta við sýn­ing­una, ofnotað „kín­verskt spak­mæli“ sem er víst ekk­ert kín­verskt spak­mæli heldur ein­hver hund­rað ára gam­all mis­skiln­ingur breskra diplómata á ein­hverjum mandarín-frasa.

En jæja. Inn gengum við og strax á fyrsta klukku­tím­anum sá maður meira af inn­spírer­andi hágæð­a­list en maður hefur séð á und­an­förnum tveimur árum. Það var greini­legt að hér hafði verið valið í heimsliðið. Maður var bombarder­aður úr öllum heims­hornum. Fyrst með ágengum ljós­myndum hinnar suður-afrísku Zanele Muholi (sjálfs­myndir þar sem hún hefur staðlað sig svarta, horfir beint í augun á okkur og spyr: var það ekki svona sem þú sást mig/sérð mig?), síðan með inn­setn­ingu Tavares Strachan (USA) um örlög upp­diktaðs afró-amer­ísks geim­fara (ég reyndar trúði þessu alveg), og loks heilum mynd­banda­heimi Ed Atkins (England) sem var svo klikk­aður og magn­aður að maður lypp­að­ist nán­ast niður. Engin leið að lýsa honum! Bara geggj­aður.

Shilpa Gupta (Indland) „For, In Your Tongue I Cannot Fit”, 2017-18.

Í kjöl­farið komu þunga­vigt­ar­högg frá Martine Guerrez (Mexíkó), Kahlil Joseph (USA), Christan Marclay (USA/Sviss) og Yin Xiuzhen (Kína). Það sem marði mitt hjarta var svo hljóð­inn­setn­ing hinnar ungu Shilpa Gupta (Indland) „For, In Your Tongue I Cannot Fit“: Hundrað míkró­fónar hengu yfir hund­rað stál­spjótum og upp á enda hvers þeirra hafði verið stungið ljóði eftir skáld sem setið hefur í fang­elsi fyrir yrk­ingar sínar. Skáldin eru sem­sagt eitt hund­rað tals­ins, það elsta frá átt­undu öld, það yngsta ungur Búrmi, Maung Aungkha, sem var hand­tek­inn árið 2016 fyrir að ímynda sér í ljóði að hann hefði látið tattú­vera por­trett af for­seta Mjanmar á lim sinn. (Fyrir þá fyndni fékk hann sex mán­uði.) Hljóð­nem­arnir eru svo engir nemar heldur hátal­arar, úr þeim hljóma ljóðin lesin á ensku, kín­versku, rúss­nesku, arab­ísku, hindí, tyrk­nesku, úrdú … svo úr verður magn­aður seiður frels­aðra radda. Maður röltir á milli spjót­anna, ljóð­anna og les eitt og eitt: „Því byssu­kúlur eru ekki lífs­ins fræ“ – Mahjoub Sharif, Súdan, fang­els­aður 1970, 1971, 1980, 1990. Og annað: „Jafn stað­föst og Himala­ja­fjöllin stóðum við og gáf­umst aldrei upp“ – Gopal Prasad Rimal, Nepal, fang­els­aður 1940.

Skammt undan var svo grát­legt verk eftir Teresu Margolies (Mexíkó) um afdrif ungra stúlkna í landi hennar sem horfið hafa spor­laust hund­ruðum saman í gengja­stríðum und­an­far­inna ára. Hún hefur tekið upp lest­ar­hljóð frá heim­kynnum þeirra og magnað það upp þannig að nokkrar stórar rúður, sem stillt er upp í myrku rými, titra ónota­lega. Þannig tekst okkur illa að lesa aug­lýs­ing­arnar sem límdar eru á glerið, en þær eru ekta (?) ljós­rit­aðar til­kynn­ingar um týndar stúlkur. 

Hér rann upp fyrir manni mun­ur­inn á þess­ari ungu kyn­slóð og þeim sem áður voru svo áber­andi: Hér hefur fólk eitt­hvað að segja, þessi verk hafa hið gamla góða „inni­hald“, en eru ekki formal­ískar abstrakt konstrúk­sjónir. Míníma­list­arnir hefðu látið gler­rúð­urnar standa óhreyfðar og galtómar þannig að engin leið hefði verið fyrir áhorf­and­ann að finna neins konar merk­ingu í þeim. Húrra fyrir nýju kyn­slóð­inni! Þetta er eins og mun­ur­inn á Halla Jóns og Donald Trump, ég meina Judd.

Í hádeg­is­matnum lentum við við hlið­ina á skemmti­legri þýskri lista­bran­sa­kellu frá Berlín sem var svo hress og ein­mana að hún fór strax að leika við Málfríði Jóhönnu, 19 mán­aða dóttur okkar, og tal­aði eins og vind­ur­inn. Hún er ein af fasta­geng­inu, hefur ekki misst úr bíennal í þrjá­tíu ár og skilur barnið alltaf eftir heima svo hún geti skoðað allt í þaula. Eftir því sem á sam­talið leið kom í ljós að hún var af þýska skól­anum og alls ekki hrifin af sýn­ingu Rugoffs, „alltof margir Amer­ík­anar og alltof mikið kaos, bara ljós­myndir upp um allt, verkum eftir sama lista­mann dreift um sal­ina og ég veit ekki hvað og hvað“. Það eina sem stóð upp úr að hennar mati voru hin dauf­legu emal­er­uðu abstrakt mál­verk löndu hennar, Ulrike Müller, að mínu mati einn veikasti hluti sýn­ing­ar­innar. Og svo dásam­aði hún hlið­ar­sýn­ingu á verkum hins írska and­lausa abstrakt­mál­ara Sean Scully, sem gagn­rýn­and­inn snjalli, Jerry Saltz, var búinn að vara okkur við á Instagram, enda sá írski lík­lega mesti skíta­skaufi lista­heims­ins í dag, er kvæntur einka­þotu sinni og hugsar um pen­inga hálfan dag­inn. „Ég er Donald Trump lista­heims­ins, ég er á sama level í sjálfs­trausti og hann,“ lét hann hafa eftir sér í nýrri heim­ilda­mynd. 

Sun Yuan og Peng Yu (Kína): „Dear”, 2015

Kín­verska parið Sun Yuan og Peng Yu átti ærið snjallt verk í miðjum Arsenale-skál­anum: Mann­laust sæti úr marm­ara (álíkt því sem Lincoln situr í í minn­is­merki sínu í Washington) stendur í gler­búri og upp úr sess­unni, á rass­gat­s­stað, liggur plast­snúra sem annað slagið „fer í gang“; knúin þrýsti­lofti æðir hún um loftið og rýmið og slæst utan í gler­veggi búrs­ins, tekur æðiskast, eins og algalin gyllinæð hins valda­mesta. Klikkað! Þessir Kín­verjar virð­ast vera að taka yfir lista­heim­inn. Hjóna­kornin stálu svo sen­unni dag­inn eftir, í B-hluta sýn­ing­ar­innar, með verki sínu „I Can’t Help Myself“: Nú stóð ein­arma vél­menni í lok­uðu gler­búri og sóp­aði án afláts til sín vökva sem minnti óþyrmi­lega á blóð. Mann­legar hreyf­ingar róbóts­ins, elegant og brú­tal í bland, sátu í manni lengi eftir að áhorfi linnti. Eitthvað svo skemmti­lega geggjað verk. Stuð í Feneyjum! Og túlk­un­ar­mögu­leik­arnir margir: Munu vél­menni fylla dýra­garða fram­tíð­ar­innar? Óttumst við róbóta jafn mikið og hlé­barða? Eru þeir líka komnir af öpum? Já, og að maður gæti svo staðið þarna í korter og dáðst að vél­menni þrífa gólf …

Þegar hér var komið gat maður vart meir og var ósköp feg­inn og ærið list­mettur að kom­ast út úr Arsenale-skál­anum og taka sér smá pásu, en þá tók sjálft aðal­verkið við: Maður var rétt búinn að tylla sér niður á bekk með sof­andi barn í kerru þegar við manni blasti óvænt „Barca nostra“, „Báturinn okkar“, ógn­ar­hár, ryðg­aður og illa brot­inn dallur sem stillt hafði verið upp á fornum hafn­ar­bakka með stefnið í átt að báti land­helg­is­gæsl­unnar ítölsku sem lá þar við kæja merktur Guardia Costiera. Hér var sem­sagt komið verk Íslands­vin­ar­ins Cristoph Büchel, þess sem var full­trúi okkar í Feneyjum 2017. Nú hafði honum tek­ist að véla út úr ítölskum yfir­völdum illa far­inn bát sem sokkið hafði með 700–900 hund­ruð flótta­mönnum inn­an­borðs í Mið­jarð­ar­hafi árið 2016, aðeins 28 manns komust lífs af.

Hall­grímur Helgason, Þor­gerður Agla Magn­ús­dóttir og Mál­fríður Jóhanna Öglu­dóttir Hall­gríms­dóttir mætt til Feneyja.

Þegar maður heyrði fyrst af þessu verki í vor voru við­brögð manns: Nei! Svona gerir maður ekki. Maður gerir sér ekki lista­verk úr slíkum harm­leik. Hvernig líður eft­ir­lif­endum að horfa upp á slíkt? Er ekki verið að lyfta sér list­rænt upp á dauða hund­ruða? En svo kemur maður út úr hinum langa list­ræna kerskála (já, ein­hvern tíma verður álverið í Straums­vík fínt til að nota í bíennal), akþreyttur eftir að hafa lesið sér til á upp­lýs­inga­blöðum um 50 lista­menn eða svo, og sér þennan bát, og hann kveikir sam­stundis á hund­rað bjöllum sem spyrja hund­rað ann­arra spurn­inga, og það með öllu for­mála­laust, hér þarf engra útskýr­inga við, maður er sleg­inn í mag­ann og utan undir í einu vet­fangi og stendur þarna agn­dofa og gráti nær. Er hægt að biðja um meira af einu lista­verki? 

Ég sner­ist sem­sagt á punkt­inum. Allar hugs­anir um hvort þetta mætti, hvort það væri til­hlýði­legt, hvort hér væri ekki verið að traðka á dauða sak­lausra fórn­ar­lamba, fuku út í veður og vind. Og maður bara með­tók verkið mögl­un­ar­laust. Jú, auð­vitað átti þetta að vera hér. Auðvitað þurfti þetta að vera hér. Hvers virði er heims­sýn­ing á sam­tíma­list án þess að minnst sé á stærstu ham­farir síð­ustu ára? For­dóm­arnir fuku af manni, erindi verks­ins sigr­aði mann. 

Maður sam­þykkir „Barca nostra“ eftir að hafa verið á móti því á mórölskum for­sendum, og sam­þykkir það á nán­ast sömu mórölsku for­sendum, en hugsar svo lengra og afneitar þá verk­inu aftur á for­send­unum; æ, hvað er lista­el­ítan að hreykja sér af samúð með látnum flótta­mönnum? En sam­þykkir það svo loks aftur af því í nánd sinni kaf­færir það allar þessar hugs­anir og vanga­veltur, öll rök og reglur, og maður bara segir æ, fokk it, þetta er of stórt, of hrika­legt, erindið er stærra en allar spek­úla­sjón­irnar. Og erindið er einmitt þetta: Hér sitjum við í okkar feneysku for­rétt­indum á meðan flótta­manna­búð­irnar standa yfir­fullar handan fjarð­ar­ins. Og ætlum við ekki að gera neitt í þessu? Er ekki tími til kom­inn að sætta sig við að for­rétt­indi okkar munu ekki vara að eilífu? Er ekki okkar vernd­aði air­bnb-heimur á enda kom­inn? Það er jú annað fólk sem þarf á þessum rúmum að halda! 

Deil­urnar og reiðin útaf Barca Nostra eru lík­ast til merki um að hér sé sögu­legt verk á ferð. Pissu­skál nýrrar aldar?

Luc Tuymans: „Secrets”, 1990.

En áfram með smjörið. Daginn eftir skiptum við liði og fyrri­part­inn skrapp ég í Palazzo Grassi til að skoða yfir­lits­sýn­ingu á verkum hins belgíska Luc Tuymans, sem lengi hefur heillað með sínum grá­mósku­legu og ynd­is­lega þung­lyndu mál­verkum. Þessi sýn­ing olli samt von­brigðum. Þegar á hólm­inn kom hafði dauð­yfl­is­legi drung­inn yfir­hönd­ina og maður kom út með spurn­ing­una: Hvað er mað­ur­inn eig­in­lega að mála? Til hvers er hann að mála mynd af svefn­her­berg­inu í Big Brother sjón­varps­þátt­unum? Eða ein­hverjar senur út úr ein­hverjum obskúrum gömlum bíó­myndum sem ekki segja neinum neitt? Afhverju gerir hann por­trett af ein­hverjum japönskum vit­leys­ingi sem myrti sam­stúd­ínu sína í Sorbonne árið 1981? Þetta virkar allt svo til­vilj­ana­kennt, eins og hann viti ekk­ert hvað hann eigi að gera. Samt er por­trett-tækni hans frá­bær og þarna gat að líta mörg frá­bær verk, eins og litla por­trettið af Albert Speer, arki­tekti Hitlers, jakka­fata­klæddum með lokuð augu, mál­verk sem ber hinn góða titil „Secrets“.

Eft­ir­mið­deg­inum eyddum við síðan saman í Giardini, sáum þar B-hluta sýn­ingar Rugoffs og nokkra þjóð­ar­skála. Barnsins vegna treystum við okkur ekki í bið­röð við lit­háíska skál­ann, sem fékk aðal­verð­launin þetta árið, en hann krafð­ist auk þess klukku­tíma áhorfs. Og stúlkan stutta sofn­aði heldur ekki alveg á réttum stað þennan dag­inn, þannig að við urðum bara að ganga í gegnum nokkra víd­eó­skála, eins og þann danska og franska, en báðir hlutu frá­bæra dóma og báðir byggja allt á víd­eó­verkum. Gallinn við vídeó-verk er jú sá að maður þarf að horfa á þau, á meðan kost­ur­inn við mál­verkið er sá að maður þarf þess ekki. Tvær sek­úndur nægja, og maður gleymir því kannski aldrei. 

Við kíktum í United Kingdom-skál­ann þar sem inn­setn­ingin hefði átt að heita United Boredom. Við kíktum í þýska skál­ann þar sem gamla gorí nútíma­listin fékk að njóta sín í öllum sínum hryll­ingi. Við kíktum í jap­anska skál­ann þar sem sýnd voru vídeó af risa­vöxnum kletta­björgum sem tsunami hafði varpað á land í Japan. Það var magnað en varla er nóg að mæta bara með frétta­myndir á bíennal­inn? Við kíktum í rúss­neska skál­ann. Efri hæðin var eins og að ganga inn í heil­ann á Dostojev­skí, yfir­gengi­lega dramat­ískt og gam­al­dags. En neðri hæðin var full af heill­andi fjöri. Alex­ander Shishkin-Hokusai hafði end­ur­gert nokkur eld­fræg og klass­ísk hol­lensk mál­verk úr Hermitage-safn­inu í Pét­urs­borg eins og væru þau leik­tæki í skemmti­garði frá 1890. Dásam­legt. Við kíktum í kín­verska skál­ann sem var eins og að horfa inn í fram­tíð­ina. Og svo kíktum við í skand­ína­víska skál­ann sem var lík­lega sá daprasti af þeim öllum. Hér höfðu Svíar, Finnar og Norðmenn lagt í púkk en útkoman var eins og gler- batik- og veflista­sýn­ing í Norræna hús­inu 1978, með fullri virð­ingu fyrir öllu því góða fólki sem þá var upp á sitt besta. Ég hler­aði einn sýn­ing­ar­gesta orða það svo: „Hvernig er hægt að gera svona leið­in­lega og óáhuga­verða sýn­ingu?“

Skand­in­av­íski skál­inn.

En hvar var Ísland? Ekki á þessu svæði. Ekki í nágrenn­inu. Heldur á eyj­unni Giudecca, en þangað er korters­sigl­ing frá Mark­ús­ar­torgi. Og á þeirri eyju var aðeins einn annar skáli, Eistland. Við þessi litlu fjar­lægu lönd kjósum að halda sama dist­ans­inum í Feneyjum og á heimskort­inu. Það þarf sem­sagt að hafa fyrir því að sjá okkar ást­kæru Shoplifter, og ekki víst að allir geri það. Þegar hund­rað áhuga­verðar sýn­ingar eru inní bæ, og þú hefur bara 3 daga, er ekki víst að margir fórni einum eða hálfum degi í að skoða einn skála. Þannig að fyr­ir­fram ork­aði þetta ekki vel á mann. En viti menn, þegar á hólm­inn er komið, virk­aði þetta. Því inn­setn­ingin Chromo Sapiens með djúpsál­arsándtrakki Ham er þannig verk að maður er þakk­látur að fá að eyða tveimur tímum með því, og hér var ekk­ert vesen með barn í kerru því fáir skemmtu sér betur í íslenska skál­anum en hún Mál­fríður okkar. Þarna lagð­ist maður á gólf og lét líða úr sér, tók þetta inn í mak­indum, datt í sann­kallað list­mók. Og þarna kynnt­umst við fólki. Pólskar systur sem búa í USA höfðu verið þarna í tvo tíma þegar við komum, yfir sig heill­aðar enda miklar Íslands­á­huga­konur. Yfir­setu­stúlkan íslenska sagði okkur að aðsóknin væri góð, 200 manns á dag, enda okkar fram­lag á mörgum „must see“ listum í brans­anum. En maður efast um að margir aðrir hefðu „púllað“ þessa stað­setn­ingu og það hlýtur að vera mark­mið okkar að koma okkur betur fyrir í Feneyjum, uppá fram­tíð­ina að gera.

Mæðgurnar Agla og Mál­fríður í íslenska skál­anum.

Það skemmti­leg­asta við svona ferðir er auð­vitað að upp­götva eitt­hvað nýtt, sjá ný nöfn og nýstár­leg verk. Í Giardini-hluta sýn­ing­ar­innar „May You Live in Inter­est­ing Times“ voru nokkur slík sem stóðu upp úr, auk róbóta­verks­ins sem áður er nefnt. Hinn afrísk-banda­ríski Arthur Jafa fékk verð­laun fyrir „Hvíta albú­mið“, 50 mín­útna langt víd­eó­verk sem ég sá reyndar aðeins tvær mín­útur af en sitja enn í manni. Mynd­bandið er sam­setn­ingur af frétta­skotum sem sýna ras­isma hvítra Kana, brotið sem við sáum sýndi þrjá svarta lög­reglu­menn og -konur standa yfir æstum hvítum hand­járn­uðum manni sem hróp­aði stöðugt að þeim n-orðið, all svaka­legt að sjá og heyra. Og já, það er alveg nóg að mæta með frétta­myndir til Feneyja!

Hin ind­verska Shilpa Gupta, sú sem átti ljóða­hljóð­verkið í Arsenale, sýndi hér for­láta járn­hlið sem hjarað var á auðan vegg, og sveifl­að­ist í sífellu til beggja átta og slóst þannig í vegg­inn að smám saman hafði molnað úr honum. Verkið var „Untitled“ en það var eitt­hvað slá­andi sterkt við það, hliðið opn­að­ist sífellt fyrir manni og lok­að­ist manni um leið, og í hvert sinn réð­ist það á múr­inn, hér var valdið komið á vald klikk­unar.

Nicole Eisenman (USA): „Weeks on the Train“, 2015.

Og svo fann ég hér nýjan upp­á­halds­mál­ara: Nicole Eisenman frá New York. Ég hafði aðeins kynnst verkum hennar á Instagram í aðdrag­and­anum en hér fékk hún fal­lega að njóta sín, með fimm stórum mál­verkum, und­ir­furðu­legum og frá­bærum. Hjá henni verða hvers­dags­legar senur, eins og maður í lest eða les­b­íur saman í vinnu­stof­unni, maður sem situr á bar, að ein­hverjum ótrú­legum ævin­týrum, snilld­ar­skrýtnum. Hún tekur sér skemmti­leg skálda­leyfi og ein­hvern veg­inn verður allt fyndið hjá henni á mjög svo djúpan hátt: Les­b­í­urnar liggja til dæmis fyrir framan risa­vax­inn tölvu­skjá og Eisenman málar hann af gríð­ar­legri nákvæmni, með öllum skjöl­unum sem á honum hvíla og málar líka af gríð­ar­legri natni skjá­mynd­ina sem sýnir ein­hverja stjörnu­þoku í svörtum geimi. Með því að sýna þessum „ómerki­lega veru­leika sam­tím­ans“ svona mikla virð­ingu ger­ist tvennt: Hún grefur undan honum, um leið og úr verður óður til lífs­ins. 

Þá málar hún oftar en ekki reiða hvíta karla, karla með byssur, karla með vasa­ljós sem lýsa myrkri, karla að lepja eitr­aðan bjór. Gagn­rýn­and­inn Daniel Gerwin lýsir verkum hennar þannig: „Hún málar þessa hvítu reiðu karla sem við þekkjum öll svo vel. Þeir eru álappa­leg óhappa­dýr en samt svo stór­hættu­legir. Þetta eru kuflar­arnir (klans­menn­irnir) hans Philips Guston, risnir upp frá dauðum, komnir til að gera okkur lífið leitt.“

Nicole Eisenman (USA): „Morning Studio”, 2016.

Stærsta verk Eisenman í Feneyjum er mjög í þessum anda. Segja má að hér sé komin hennar útgáfa af frægu þema í list­inni: Dára­skipið, eða Ship of Fools. Verkið ber fynd­inn titil, „Heading Down River on the USS J-Bone of an Ass“, sem gæti útlagst sem: „Á leið niður ána um borð í banda­rískum bát úr kjálka­beini úr asna“, en kannski öllu heldur: „Siglt niður ána á banda­ríska her­skip­inu Asna­kjálka­beini“. Um borð eru þrír menn (listin, vinnan, valdið?) og spilar sá fremsti á flautu, sá næsti stýrir segl­inu og aft­astur er Trump­legur karl á jakka­fötum. Er hún ekki að mála upp ástandið í heima­land­inu? Kjálka­skipið stefnir fram af miklum fossi … 

Hér er mál­verkið í ess­inu sínu og fram­kallar margar og óræðar til­finn­ingar, allt þetta flókna og loðna, og ómeð­vit­aða, sem listin ein getur vakið í okkur: Ævin­týrið innra. Hér verður mál­verkið að frétta­mynd um sál­ar­á­stand heims­ins. Farið endi­lega á inter­netið og kynnið ykkur mál­verkin hennar Nicole Eisenman! 

Eða drífið ykkur bara til Feneyja. Þar er stuðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár