Hver er Ásgeir Jónsson? – 10 áhugaverðar staðreyndir um nýja seðlabankastjórann

Ásgeir Jónsson þykir skarp­greindur og úrræða­góður. Hann er hægri­maður í skatta- og rík­is­fjár­málum, lítur á fjár­magns­höft sem mann­rétt­inda­brot og er með sterk tengsl inn í fjár­mála­geir­ann eftir að hafa unnið fyrir Kaupþing, GAMMA og Virðingu.

Hver er Ásgeir Jónsson? – 10 áhugaverðar staðreyndir um nýja seðlabankastjórann

For­sæt­is­ráð­herra hefur skipað Ásgeir Jónsson hag­fræð­ing í emb­ætti seðla­banka­stjóra. Hver er mað­ur­inn og hvers vegna var hann skip­aður? Hvað hefur hann gert og hvaða skoð­anir hefur hann á efna­hags- og sam­fé­lags­málum? Stundin tók saman nokkrar áhuga­verðar stað­reyndir um Ásgeir Jónsson.

1. Þykir vel liðinn, skarpgreindur og farsæll stjórnandi

Í umsögnum sem for­sæt­is­ráðu­neyt­inu barst um Ásgeir vegna umsóknar hans um stöðu seðla­banka­stjóra kemur fram að hann sé skarp­greindur, víð­sýnn, afkasta­mik­ill, rit­fær, frjór í hugsun, manna­sættir og góður í mann­legum sam­skiptum.

„Hefur Ásgeir reynst far­sæll stjórn­andi, verið
vel lið­inn, með skýra sýn, sann­gjarn en fylg­inn sér“

„Að mati umsagn­ar­að­ila hefur Ásgeir reynst far­sæll sem stjórn­andi, verið vel lið­inn, með skýra sýn, sann­gjarn en fylg­inn sér, úrræða­góður og fljótur að setja sig inn í hluti. Hann njóti virð­ingar og hafi lyft þeim ein­ingum sem hann hefur stýrt upp á hærra stig,“ segir í rök­stuðn­ingi ráðu­neyt­is­ins. Fram kemur að í við­tali hafi hann sýnt „afburða þekk­ingu á verk­efnum og stjórn­tækjum Seðla­bank­ans“. 

2. Stýrði greiningardeild Kaupþings fyrir hrun

Ásgeir Jónsson var for­stöðu­maður í grein­ing­ar­deild og aðal­hag­fræð­ingur Kaup­þings og síðar Arion banka á árunum 2004–2011. Fram kemur í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um banka­hrunið að á þeim árum hafi starf lekt­ors við hag­fræði­deild Háskóla Íslands verið kostað af Kaup­þingi og Ásgeir gegnt lekt­ors­stöð­unni sam­hliða störfum sínum hjá grein­ing­ar­deild­inni. 

„Menn hafa soldið hlaupið á undan
sjálfum sér með því að tala um að
það þyrfti að bjarga bönk­unum“

Þann 7. maí, fáeinum mán­uðum fyrir hrun, sagði hann í við­tali um stöðu bank­anna að það hefði verið „ákveðin hystería í gangi og menn soldið hlaupið á undan sjálfum sér með því að tala um að það þyrfti að bjarga bönk­unum og svo fram­vegis“. Sagði Ásgeir að bank­arnir væru „burð­ugar stofn­anir“ og rekstur þeirra gengi þokka­lega.  „Það sem við höfum fengið með útrásinni er að þeir nátt­úr­lega eru að starfa í mörgum löndum og tekj­urnar koma víða að og jafn­vel þótt það gangi eitt­hvað verr hér á Íslandi þá höfum við auð­vitað tekjur ann­ars staðar frá.“

Tveimur dögum síðar var svo haft eftir Ásgeiri í Við­skipta­blað­inu að útrás bank­anna hefði gert þá vel í stakk búna að mæta nið­ur­sveiflu í hag­kerf­inu. „Það er tví­mæla­laust styrkur núna að hafa mikið eigið fé og starf­semi erlendis, til áhættu­dreif­ingar,“ sagði hann á kynn­ing­ar­fundi vegna hag­spár grein­ing­ar­deildar bank­ans. 

„Það er tví­mæla­laust styrkur núna að
hafa mikið eigið fé og starf­semi erlendis“

Einu og hálfu ári síðar lýsti Ásgeir því í Frétta­blaðspistli að runnið hefði upp fyrir þjóð­inni að „hún hefði gerst sek um ofur­bjart­sýni á góð­ær­is­tímunum“. Nú mætti þó þjóðin ekki falla í gryfju ofur­svart­sýni enda væri allt á réttri leið.

3. Skrifaði doktorsritgerð um sveiflujöfnun í litlu hagkerfi

Hæfn­is­nefnd mat fjóra umsækj­endur mjög vel hæfa til að gegna emb­ætti seðla­banka­stjóra, en eitt af því sem réði úrslitum var að Katrín Jak­obs­dóttir telur sér­þekk­ingu Ásgeirs á pen­inga­stefnu geta nýst vel við stjórn Seðla­bank­ans. Ásgeir lauk dokt­ors­prófi í hag­fræði frá Indiana Uni­versity í Banda­ríkj­unum árið 2001 með alþjóða­fjár­mál, pen­inga­mála­hag­fræði og hag­sögu sem aðal­svið. Dokt­ors­rit­gerð hans fjall­aði um sveiflu­jöfnun yfir skamman tíma í litlu opnu hag­kerfi og ber heitið “Short-term Stabilization in Small Open Economies”. 

„Leit ráð­herra meðal ann­ars
til efnis dokt­ors­rit­gerðar Ásgeirs“

„Var það mat ráð­herra að sér­þekk­ing Ásgeirs Jóns­sonar á pen­inga­stefnu myndi nýt­ast mjög vel í emb­ætti seðla­banka­stjóra. Í því sam­bandi leit ráð­herra meðal ann­ars til efnis dokt­ors­rit­gerðar Ásgeirs á þessu sviði, rann­sókna hans og kennslu á svið­inu, ritun fræði­rita og reynslu hans af ráð­gjöf við stjórn­völd um umgjörð pen­inga­stefnu,“ segir í rök­stuðn­ingi ráð­herra fyrir ráðn­ing­unni. Jafn­framt taldi ráð­herra að stjórn­un­ar­hæfni Ásgeirs myndi nýt­ast betur en sam­svar­andi hæfni ann­arra umsækj­enda í emb­ætti seðla­banka­stjóra.

Und­an­farin ár hefur Ásgeir gegnt starfi for­seta hag­fræði­deildar í Háskóla Íslands. Sér­fræði­þekk­ing Ásgeirs á pen­inga­málum og pen­inga­stefnu kom að góðum notum þegar Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra skip­aði starfs­hóp um end­ur­mat á pen­inga­stefnu Íslands árið 2017. Ásgeir var for­maður hóps­ins og afrakst­ur­inn birt­ist í ítar­legri skýrslu um fram­tíð íslenskrar pen­inga­stefnu í fyrra.

4. Markaðssinnaður sonur þjóðlegs vinstrimanns

Faðir Ásgeirs Jóns­sonar er Jón Bjarna­son, þing­maður Vinstri grænna til 14 ára sem gegndi emb­ætti sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra árin 2009 til 2011. Jón er þekktur fyrir þjóð­lega vernd­ar­stefnu og eng­inn sér­stakur aðdá­andi frjálsra við­skipta.  Hann lenti upp á kant við sam­herja sína á kjör­tíma­bili vinstri­st­jórn­ar­innar – meðal ann­ars vegna tregðu til að fylgja eftir verk­efnum í tengslum við umsókn um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.

Ásgeir Jónsson er hins vegar gall­harður mark­aðs­sinni og lítt hrif­inn af við­skipta­höftum. Árið 2014 tók hann þátt í vinnslu úttektar fyrir ASÍ, Samtök atvinnu­lífs­ins, Við­skipta­ráð og Félag atvinnu­rek­enda þar sem mælt var með því að Ísland tæki upp evru og gerð­ist aðili að mynt­banda­lagi Evrópu. 

5. Fengið á annan tug milljóna fyrir að ráðleggja stjórnvöldum 

For­sæt­is­ráðu­neytið greiddi Ásgeiri Jónssyni rúmar 13 millj­ónir króna fyrir for­mennsku í nefnd um end­ur­skoðun íslenskrar pen­inga­stefnu árin 2017 og 2018. Stundin fjall­aði um málið í fyrra en fram kom í svörum ráðu­neyt­is­ins að Ásgeir hefði fengið greiðslur í sam­ræmi við verk­samn­ing fyrir 1.021 klukku­stundar vinnu. Ásgeir veitti for­sæt­is­ráðu­neyt­inu einnig ráð­gjöf árið 2014 þegar skoð­aðar voru hugs­an­legar leiðir til afnáms verð­trygg­ingar og fékk hann þá greiðslu að fjár­hæð 425.000 kr. Loks greiddi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið Ásgeiri 300.000 krónur fyrir vinnu vegna frum­varps til laga um opin­ber fjár­mál í júní 2013.

Þannig er ljóst að þekk­ing Ásgeirs þykir dýr­mæt: ráð­herrar þriggja mis­mun­andi rík­is­stjórna, bæði af hægri- og vinstri­vængnum, hafa leitað til hans og þegið ráð­gjöf frá honum við mik­il­væga stefnu­mótun á und­an­förnum árum. 

6. Vel tengdur inn í fjármálageirann

Samhliða störfum sínum við Háskóla Íslands hefur Ásgeir Jónsson verið efna­hags­ráð­gjafi hjá fjár­mála­fyr­ir­tækj­unum Virðingu og Gamma. Þegar Stundin ræddi við Ásgeir í fyrra, vegna erindis sem hann flutti á ráð­stefnu á vegum Heima­valla, stærsta leigu­fé­lags lands­ins, sagð­ist hann ekki hafa komið nálægt GAMMA síðan 2014. Ásgeir vann grein­ingu á íslenskum hús­næð­is­mark­aði fyrir GAMMA árið 2011 en í kjöl­farið hóf fyr­ir­tækið stór­felld upp­kaup á íbúð­ar­hús­næði sem svo varð grund­völl­ur­inn að stofnun Almenna leigu­fé­lags­ins.

„Ísland þarf á sterkum hagn­aðar-
drifnum leigu­fé­lögum að halda“

Fyrr á þessu ári birti Ásgeir pistil á Facebook þar sem hann velti því fyrir sér hvort „ofs­inn á sam­fé­lags­miðlum“ hefði fælt fjár­festa frá Heima­völlum og ýtt upp leigu­verði. Sagði hann Ísland þurfa á sterkum hagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum að halda. Störfin fyrir Gamma og Virðingu bæt­ast ofan á fyrri störf Ásgeirs fyrir Arion banka og Kaupþing; hann hefur þannig sterk tengsl inn í fjár­mála­geir­ann. 

7. Taldi fjármagnshöftin mannréttindabrot

Ásgeir Jónsson hefur lýst fjár­magns­höft­unum sem inn­leidd voru eftir hrun sem „brot á mann­rétt­indum íslenskra þegna“. Þannig virð­ist hann aðhyll­ast sjón­ar­mið í anda frjáls­hyggju um að mann­rétt­indi kalli á óheft flæði fjár­magns milli landa, þvert á t.d. sjón­ar­mið sem voru ríkj­andi í hinum vest­ræna heimi á tímum Bretton Woods-kerf­is­ins eftir seinna stríð og fram eftir átt­unda ára­tugnum þegar gert var ráð fyrir fjár­magns­höftum af einu eða öðru tagi sem mik­il­vægu hag­stjórn­ar­tæki. Þverpóli­tísk sátt var um beit­ingu fjár­magns­hafta á Íslandi í kjöl­far hruns­ins. Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn sætt­ist á slíka stefnu, sem var til marks um við­horfs­breyt­ingu hjá sjóðnum sem áður hafði tekið ein­dregna afstöðu gegn fjár­magns­höftum, m.a. í Asíu­krís­unni skömmu fyrir alda­mót.

8. Hélt að Keynes væri Georg

Sér­kenni­leg­asta frétt sem rituð hefur verið um Ásgeir Jónsson birt­ist í Kvenna­blað­inu í mars 2017. Þar er sagt frá því að Ásgeir, þá for­seti hag­fræði­deildar, hafi ítrekað kallað John Maynard Keynes, virtasta og áhrifa­mesta hag­fræð­ing 20. aldar, George. „Spurt hefur verið um George á prófi við Háskóla Íslands og nafn hans er að finna í kennslu­bókum sem og skýrslum eftir Ásgeir,“ sagði í frétt Kvenna­blaðs­ins.

Keynes lávarður

Vitnað var í þó nokkrar greinar og skýrslur eftir Ásgeir þar sem mis­farið er með nafn hag­fræð­ings­ins, bæði í texta og atriða­orða­skrá. Í ljósi þekk­ingar og reynslu Ásgeirs verður að ætla að hér hafi verið um end­ur­tekna klaufa­villu að ræða, eins konar mein­loku sem hann hafi átt erfitt með að hrista af sér. Slíkt getur auð­vitað komið fyrir á bestu bæjum. Keynes lávarður fékk loks sitt rétta nafn í skýrslu starfs­hóps Ásgeirs um fram­tíð íslenskrar pen­inga­stefnu í fyrra.

9. Óvinsæll meðal verkalýðsforkólfa

Þegar verka­lýðs­hreyf­ingin krafð­ist veru­legra launa­hækk­ana og boð­aði svo til verk­falla fyrr á árinu birti Ásgeir hug­leið­ingu á Facebook þar sem hann sak­aði stétta­fé­lög um ábyrgð­ar­leysi og sagði kröf­urnar „ekki taka til­lit til nútíma hag­stjórnar“. Þá sagði hann „tak­markað gagn að úrdráttum úr Das Kapital eða reynslu­sögum af ónafn­greindum ein­stak­lingum“ og var­aði við því að miklar hækk­anir á grunn­töxtum gætu leitt til „verri kjara hjá hinum verst settu – svo sem vegna verð­bólgu, hærri vaxta og auk­ins atvinnu­leysis“. Hann tal­aði með sams konar hætti í við­tali við Vísi.is í fyrra. „Sagan kennir okkur að í hvert sinn sem laun eru snar­hækkuð um tugi pró­senta fellur gengið og verð­bólgan fer úr bönd­unum.“

Þetta hefur ekki aflað honum vin­sælda innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. „Svíður gamla grein­ing­ar­stjór­anum að ný verka­lýðs­hreyf­ing skuli voga sér að gera kröfu um að lág­marks­laun dugi fyrir þeim fram­færslu­við­miðum sem hið opin­bera hefur gefið út þannig að lág­tekju­fólk geti náð endum saman frá mán­uði til mán­aðar og haldið mann­legri reisn?“ skrif­aði Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness í fyrra. 

10. Hægrimaður í skatta- og ríkisfjármálum

Ásgeir Jónsson talar og skrifar sem hægri­s­inn­aður hag­fræð­ingur þegar hann fjallar um skatta­mál og rík­is­fjár­mál. Eitt besta dæmið um þetta er pist­ill sem hann skrif­aði í tíma­rit hag­fræði­nema við Háskóla Íslands í fyrra. Þar hélt hann því fram, líkt og um hlut­læga stað­reynd væri að ræða, að íslenskir skatt­stofnar væru „að mestu full­nýttir“ og stjórn­völd fram­tíðar hefðu ekki mögu­leika á að sækja fjár­magn með nýjum sköttum til að stand­ast vax­andi kröfur um vel­ferð­ar­þjón­ustu.

Í sama pistl­inum sagði Ásgeir að skattar á borð við hátekju­skatta og auð­legð­ar­skatta skil­uðu „tak­mörk­uðum tekjum“ og jafn­framt mætti færa rök fyrir því að þeir drægju úr hvat­anum til vinnu og sparn­aðar. Þá gagn­rýndi hann harð­lega ákall Kára Stef­áns­sonar og tug­þús­unda Íslend­inga um stór­aukin fram­lög hins opin­bera til heil­brigð­is­kerf­is­ins og sagði að færa mætti rök fyrir því að „öll besta almanna­þjón­ustan á Íslandi“ væri „skipu­lögð af frjálsum félaga­sam­tökum eða gras­rót­ar­sam­tökum“ frekar en hinu opin­bera. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár