Stríðið gegn konum

Þrenging á rétti kvenna til þung­un­ar­rofs í Banda­ríkj­unum er síð­asti kafl­inn í ára­tuga sögu vax­andi radíkalís­er­ingar hins banda­ríska hægris og bar­áttu krist­inna aft­ur­halds­manna gegn borg­ara­legum rétt­indum sem unnin voru í rétt­inda­bylt­ingu eft­ir­stríðs­ár­anna.

Stríðið gegn konum
Krafa um sjálf­ræði Mót­mæl­endur í Ft. Lauder­edale, Florida. Mynd: Shutterstock

Nýleg laga­setn­ing í Alabama og ýmsum öðrum Suður- og Mið­vest­ur­ríkjum Banda­ríkj­anna, sem bannar fóst­ur­eyð­ingar eftir sjöttu eða átt­undu viku með­göngu, svokölluð „heart­beat laws“, varpar upp matrað­ar­kenndri fram­tíð­ar­sýn fyrir stóran hluta kvenna í Banda­ríkj­unum. Á sama tíma og Saga þern­unnar eftir Margaret Atwood hefur verið end­ur­gerð sem sjón­varps­s­ería af efn­isveit­unni Hulu virð­ast kristnir aft­ur­halds­sinnar stað­ráðnir í að setja sög­una á svið í raun­heimum.

Bar­áttu­fólk fyrir rétti kvenna til þung­un­ar­rofs hefur þungar áhyggjur af þess­ari sókn fóst­ur­eyð­ing­ar­and­stæð­inga og krist­inna aft­ur­halds­manna, enda glæpa­væða lögin þung­un­ar­rof. Lögin skil­greina fóstur sem full­burða ein­stak­linga fyrir lög­unum. Læknar sem fram­kvæma þung­un­ar­rof í Alabama geta því átt yfir höfði sér allt að 99 ára fang­elsi, og konur kunna að eiga yfir höfði sér lög­reglu­rann­sóknir vegna fóst­ur­missis, eins og nýlegt dóms­mál í Alabama sýnir.

Hvað skýrir þessa vax­andi rót­tækni hins kristna hægris í því sem hefur verið kallað „stríð“ gegn konum, og eru sigrar fóst­ur­eyð­ing­ar­and­stæð­inga á rík­is­þingum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár