Íslenska ríkið braut gegn sakborningum í Al-Thani málinu

Störf sonar hæsta­rétt­ar­dóm­ar­ans Árna Kol­beins­sonar fyrir Kaupþing ollu því að draga mátti í efa að dóm­ur­inn væri óvil­hallur. Máls­með­ferðin talin rétt­lát að öðru leyti.

Íslenska ríkið braut gegn sakborningum í Al-Thani málinu
Hæsta­rétt­ar­dóm­ari var van­hæfur Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hefur kom­ist að því að Árni Kol­beins­son hæsta­rétt­ar­dóm­ari hafi verið van­hæfur í Al-Thani mál­inu.

Íslenska ríkið braut gegn rétti sak­born­inga í Al-Thani mál­inu til rétt­látrar máls­með­ferðar fyrir óvil­höllum dóm­stóli þeg­ara sak­born­ingum og lög­mönnum þeirra var ekki gert við­vart um tengsl sem hugs­an­lega hefðu getað leitt til van­hæfis eins dóm­ara Hæsta­réttar.

Umræddur dóm­ari, Árni Kol­beins­son, er faðir Kolbeins Árna­sonar sem vann hjá Kaup­þingi fyrir fall bank­ans og eftir það fyrir skila­nefnd bank­ans. Sak­born­ing­arnir gátu með réttu dregið í efa að Hæsti­réttur væri óvil­hallur í mál­inu vegna umræddra tengsla. Þetta kemur fram í dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu sem birtur var í morgun. Að öðru leyti taldi dóm­stóll­inn að máls­með­ferð í Al-Thani mál­inu hefði verið sann­gjörn og fellst ekki á aðrar umkvart­anir þáver­andi stjórn­enda Kaup­þings, sem kærðu dóm Hæsta­réttar yfir sér til dóms­stóls­ins.

Fyrr­ver­andi stjórn­endur Kaup­þings, þeir Hreiðar Már Sig­urðs­son, Ólafur Ólafsson, Sigurður Ein­ars­son og Magnús Guð­munds­son voru sak­felldir fyrir aðild sína að Al-Thani mál­inu, fyrst í hér­aði og síðan í Hæsta­rétti árið 2015, og voru þeir dæmdir fyrir umboðs­svik og mark­aðs­mis­notkun, í fjög­urra til fimm og hálfs árs fang­elsi hver fyrir sig.

Sak­born­ing­arnir fjórir kærðu málið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu með þeim rökum að þeir hefðu ekki hlotið rétt­láta og óvil­halla máls­með­ferð hér á landi. Tiltóku þeir þannig að hvoru tveggja hefði eig­in­kona hæsta­rétt­ar­dóm­ar­ans Árna Kol­beins­sonar verið vara­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins meðan rann­sókn á Kaup­þingi stóð yfir og einnig að sonur Árna, Kolbeinn, hefði starfað fyrir Kaupþing fyrir fall hans og síðan fyrir skila­nefnd bank­ans. Þá töldu þeir sig ekki hafa hlotið nægan aðgang að gögnum máls­ins við vörn sína.

Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn úrskurð­aði um að vafi væri á hæfi Árna í mál­inu sökum starfa Kolbeins sonar hans fyrir bank­ann en fjór­menn­ing­arnir eða lög­menn þeirra voru ekki upp­lýstir um tengsl þeirra feðga og höfðu því ekki kost á að and­mæla setu Árna í dómnum. Er íslenska rík­inu gert að greiða fjór­menn­ing­unum 2.000 evrur hverjum fyrir sig til að standa straum af máls­kostn­aði. Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn féllst hins vegar ekki á aðrar kröfur í mál­inu og taldi að máls­með­ferðin hefði að öðru leyti verið rétt­lát.

Al-Thani málið sner­ist um sýnd­ar­við­skipti með hluta­bréf í Kaup­þingi banka en í sept­em­ber árið 2008 var til­kynnt að sheikh Mohammed bin Khalifa Al-Thani hefði keypt ríf­lega fimm pró­senta hlut í Kaup­þingi fyrir 25,7 millj­arða króna. Hins vegar leiddi rann­sókn emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara í ljós að kaupin voru fjár­mögnuð af bank­anum sjálfum til að fegra stöðu hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár