Engin tveggja ríkja lausn?

Allar tilraunir til að stilla til friðar fyrir botni Miðjarðar­hafs síðustu áratugi hafa gert ráð fyrir stofnun sjálf­stæðs ríkis Palestínu­manna á Vestur­bakkanum og Gaza en þær tilraunir hafa líka allar mistekist hrapal­lega. Ísraelar hafa með skipulögðum hætti grafið undan öllum grund­velli fyrir slíku ríki en sumir fræðimenn telja víst að með því hafi þeir um leið gert út af við framtíð Ísraels sem ríki Gyðinga.

Götumarkaður í Austur-Jerúsalem
Götu­mark­aður í Austur-Jer­úsalem Meiri­hluti Austur-Jer­úsalem eru Palest­ínu­menn. Vaxandi hópur harð­línu­manna í ísra­elskum stjórn­málum vill gera til­kall til enn meira lands og losna við alla Palest­ínu­menn með einum eða öðrum hætti. Mynd: Shutterstock

Í höfuð­stöðvum vatns­veitunnar í Ramallah á Vestur­bakkanum sátu verk­fræðingar og biðu eftir símtali frá Ísrael þegar undir­ritaðan bar að garði einn daginn. Þeir urðu varir við bilun tveimur dögum áður en höfðu ekki fengið leyfi til að fara og athuga málið, enda sitja ísraelskir hermenn um vatns­lindirnar á þessu mikla þurrka­svæði. „Við þurfum nánast leyfi til að fara á klósettið, það er daglega niður­lægingin sem felst í hernáminu sem er erfiðast að þola,“ segir einn þeirra. Palestínu­menn eru minntir á það oft á dag að þeir ráða ekki eigin örlögum.

Á einum veggnum var stórt kort af Vestur­bakkanum sem líktist helst nútíma­listaverki. Það sýndi ótal landtöku­byggðir, girðingar og vegi sem skera land Palestínu­manna niður í búta. Síðan þá hafa bæst við háir múrar sem ná langt inn fyrir meira að segja þau landamæri sem Ísraels­menn hafa teiknað og taka því enn meira land. Það gefur augaleið að það er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár