Séreignasparnaðarleið Sigmundar og Bjarna gagnaðist helst þeim tekjuhæstu

Húsnæðis­úrræði um greiðslu séreigna­sparnaðar skatt­frjálst inn á höfuðstól fasteigna­lána gagnast ekki tekju­lágum. Kostnaður fyrir ríkissjóð nemur 2 milljörðum króna í ár. Sérfræðinga­hópur mælir einnig með breytingu á vaxta­bótakerfinu eða aflagningu þess.

Leiðrétting og séreignarsparnaður
Leið­rétt­ing og sér­eign­ar­sparn­aður Sér­eign­ar­sparn­að­ar­leiðin var kynnt til sög­unnar í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Bjarna Bene­dikts­sonar. Mynd: Pressphotos

Séreignar­sparnaðar­leiðin svokallaða, sem kynnt var sem hluti af skulda­leið­réttingunni í ríkis­stjórnartíð Sjálfstæðis­flokksins og Framsóknar­flokksins hefur gagnast tekjuháum mest. Úrræðið kostar um 2 milljarða króna í ár.

Þetta kemur fram í húsnæðis­kafla skýrslu sérfræðinga­hóps um endur­skoðun tekju­skatts og bótakerfa hjá einstaklingum sem kynnt var á blaðamanna­fundi í fjármála- og efnahags­ráðuneytinu í gær.

Séreigna­sparnaðar­leiðin var kynnt haustið 2013 sem hluti af „leið­réttingunni“ sem tíma­bundin aðgerð, en var framlengd aftur árið 2017 í tvö ár. Í leiðinni felst að heimilt sé að ráðstafa séreigna­sparnaði skatt­frjálst til að lækka höfuðstól húsnæðis­lána. Úrræðið rennur út í lok júní á þessu ári, en samkvæmt nefndinni hefur nýting þess einkum verið hjá þeim sem hærri tekjur hafa.

„Sérfræðinga­hópur og stýri­nefndin telja að úrræðið sé ekki til þess fallið að styðja við fólk á húsnæðis­markaði sem hefur lágar tekjur og gera því ekki tillögu um framhald þess,“ segir í skýrslunni. Stýri­nefnd verk­efnisins var skipuð aðstoðar­mönnum ráðherra úr stjórnar­flokkunum Vinstri grænum, Sjálfstæðis­flokki og Framsóknar­flokki.

Axel HallFormaður sér­fræð­inga­hóps­ins kynnti skýrsl­una á mánu­dag.

Í skýrslunni er bent á að markmið úrræðisins hafi fyrst og fremst verið að auðvelda fjöl­skyldum að eignast húsnæði án óhóflegrar skuld­setningar.

„Séreignar­sparnaðar­úrræðið hefur einna helst verið gagnrýnt fyrir að nýtast illa þeim sem hafa lágar launa­tekjur og alls ekki þeim sem eru á bótum,“ segir í skýrslunni. „Þá njóti leigjendur einskis af þessu skatt­frelsi. Engin leið er að hafna því að þessir ágallar eru á gildandi kerfi, enda er það sniðið að einstaklingum sem eru á vinnu­markaði og búa í eigin húsnæði.“

Árið 2016 var til viðbótar tekið upp nýtt varanlegt úrræði af sama toga fyrir kaupendur sinnar fyrstu íbúðar. Áætlaður kostnaður við það er um 1 milljarður króna í ár. Sérfræðinga­hópurinn gerir ekki tillögu um að leggja það niður, en varar þó við að of langt sé gengið í þeim efnum vegna tekjutaps sem hið opinbera verður af í fram­tíðinni og að það gangi gegn markmiðum sjóða­söfnunar í lífeyris­kerfinu. Úrræðið sé nýtt og takmarkaðar upplýsingar tiltækar um hvernig það hafi nýst.

Hæsta tekjutíundin fékk hundruð milljóna í stuðning

Í kaflanum kemur einnig fram að hæstu upphæðir húsnæðis­stuðnings renni til tekju­hópanna um eða rétt undir meðal­tekjum. Hæsta tekju­tíundin fái nánast sömu upphæð í húsnæðis­stuðning á ári og sú lægsta. Sá stuðningur hafi að nær öllu leyti komið í gegnum séreigna­sparnaðar­leiðina, sem rýri skatt­tekjur hins opinbera í fram­tíðinni. Alls nemur húsnæðis­stuðningur um 25,5 milljörðum króna í ár og renna 14,2 milljarðar til eigenda húsnæðis, en 11,3 milljarðar til leigjenda.

Loks kemur fram það viðhorf hópsins að vaxta­bótakerfinu þurfi að breyta eða láta það renna sitt skeið. Áætlaður kostnaður við vaxta­bætur í ár er um 3,4 milljarðar króna. Sérfræðinga­hópurinn telur að hagrænir hvatar kerfisins séu um margt óæskilegir og kerfið sé flókið, ógagnsætt og þungt í vöfum. Þá nái stuðningur vaxtabóta langt upp tekju­dreifinguna en beinist ekki sérstak­lega að þeim tekju­lægstu.

„Sérfræðinga­hópur og stýri­nefnd telja að annaðhvort þurfi að einfalda kerfið og beina stuðningi þangað sem þörfin er mest, jafnvel þannig að vaxta­bætur verði tíma­bundnar eftir fyrstu kaup, eða viðhalda núverandi kerfi,“ segir í skýrslunni. „Seinni kosturinn felur í sér að kerfið einfald­lega renni sitt skeið með því hvernig viðmiðunar­fjárhæðir verði uppfærðar. Aukin áhersla verði þá í kjölfarið lögð á stuðning við fyrstu kaup svo að kaupendur standist kröfu um eigið fé.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skuldaleiðréttingin

Leiðari

Jón Trausti Reynisson

Svikna kynslóðin í landi jakka­fatanna

Íslenski draumurinn er í uppnámi. Í einfaldaðri mynd sér ungt fólk nú fram á að flytja á jaðarsvæði, borga leigu til GAMMA og greiða vegtolla á leið í og úr þjónustu­störfum fyrir ferðamenn til að fjármagna vegakerfi fyrir ferðamenn. Á þessari öld hafa ráðstöfunar­tekjur elsta aldurs­hópsins aukist rúmlega fimmtán­falt meira en ráðstöfunar­tekjur fólks undir þrítugu og eignir safnast saman hjá eldri kynslóðinni.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár