„Samfélagið trúði okkur ekki“

Mæðgurnar Lilja Magn­ús­dóttir og Helga María Ragn­ars­dóttir segja að sam­fé­lagið á Selfossi hafi snúið við þeim baki eftir að Helga María sagði 16 ára frá því sem hún upp­lifði sem kyn­ferð­is­lega áreitni séra Gunnars Björns­sonar í Sel­foss­kirkju. Sam­sær­is­kenn­ingar um fyr­ir­ætl­anir þeirra lifi enn góðu lífi í bænum. Tíu ár eru nú liðin frá því að Hæsti­réttur sýkn­aði í máli Helgu og ann­arrar ung­lings­stúlku.

„Samfélagið trúði okkur ekki“
Lilja Magn­ús­dóttir Lilja segir yfir­mann sinn hafa sagt sér að málið væri allt sam­særi hjá sókn­ar­nefnd­inni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Helga María Ragn­ars­dóttir var 16 ára þegar hún sagði móður sinni að prest­ur­inn í Sel­foss­kirkju hefði reynt að kyssa sig. Ári síðar, í mars 2009, hafði Hæsti­réttur dæmt í mál­inu og sýknað séra Gunnar Björns­son þar sem hátt­semi hans gagn­vart tveimur stúlkum í kirkj­unni hefði ekki getað talist kyn­ferð­is­leg áreitni eða ósið­legt athæfi gagn­vart barni í skiln­ingi lag­anna.

Sex konur, þar á meðal Helga María, lýsa kyn­ferð­is­legri áreitni séra Gunnars við sig á barns- og ung­lings­aldri í sam­tölum við Stundina. Þær segja að hann hafi í tíð sinni sem sókn­ar­prestur í Bol­ung­ar­vík, á Flateyri og á Selfossi nýtt sér aðstöðu sína til að kyssa þær og káfa á þeim.

Helga María flutti frá Selfossi og hefur lítið komið til baka. Móðir hennar, Lilja Magn­ús­dóttir, bjó þar áfram um hríð og seg­ist hafa upp­lifað …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Séra Gunnar

Skýr afstaða gegn því að Gunnar Björnsson fái að þjónusta
FréttirSéra Gunnar

Skýr afstaða gegn því að Gunnar Björns­son fái að þjón­usta

Séra Gunnari Björns­syni hefur í tvígang verið meinað að jarð­syngja látið fólk á þessu ári. Séra Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup tekur „skýra afstöðu með þolendum“ og hefur beitt sér gegn því að Gunnar fái að þjón­usta. Helga Bjarna­dóttir, sem lýsti sið­ferð­is­brotum Gunnars gegn sér árið 2019, gagn­rýnir frétta­flutn­ing um að með þessu sé brotið gegn Gunnari. Til umræðu er að svipta Gunnar hemp­unni.
Fermingarbarn séra Gunnars: „Ég var grátandi hjá honum þegar hann gerði þetta.“
FréttirSéra Gunnar

Ferm­ing­ar­barn séra Gunnars: „Ég var grát­andi hjá honum þegar hann gerði þetta.“

Kolbrún Lilja Guðna­dóttir til­kynnti um að séra Gunnar Björns­son hefði káfað á henni þegar hún var 13 ára og ótt­að­ist um vin­konu sína eftir bílslys. Mál hennar fór ekki fyrir dóm­stóla, ólíkt tveimur öðrum á Selfossi sem hann var sýkn­aður fyrir. Hún segir sátta­fund hjá bisk­upi hafa verið eins og atriði úr Ára­mótaskaup­inu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár